Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
Til kunningjanna | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Til kunningjanna

Fyrsta ljóðlína:Nú kveð ég hinn hagspaka, kvíaða hóp
bls.55
Viðm.ártal:≈ 1900
Tímasetning:1909

Skýringar

Birstist í ljóðabók Jónasar, Dagsbrún, 1909.
Nú kveð ég hinn hagspaka, kvíaða hóp,
nú kveð ég þig jórtrandi friður!
Ég veit að þið kallið mig villtan glóp,
ég veit að þið hrópið mig niður!

Ég held mína leið – og hirði ekki meir
þótt hæðninnar örvar mig stingi.
Ég get ekki staðið og hrópað ,,heyr”
á heimskunnar sauðaþingi.

En liggið þið áfram, og hefjið þið hatt
fyrir heimskunnar venjum fornum,
og lærið þið áfram að segja satt
og sanna með töldum hornum!

Og haldið þið áfram að hæða þann glóp,
sem heldur ei leið inna flestu,
og trúir ei blindum og tjóðruðum hóp,
en treystir þeim fáu, – bestu!