SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3090)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (6)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (30)
Grýlukvæði (7)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Náttúruljóð (50)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (13)
Særingar (1)
Söguljóð (12)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (38)
Ævikvæði (5)
Ævintýrakvæði (3)
Skarphéðinn í brennunni [frumútgáfa í Verðandi]Fyrsta ljóðlína:Buldi við brestur
Höfundur:Hannes Hafstein
Heimild:Verðandi. bls.60
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1882
Skýringar
Kvæðið eins og það birtist í fyrsta sinn í Verðandi. Stafsetning samræmd til nútímahorfs.
Sjá einnig kvæðið eins og það birtist í endanlegri útgáfu höfundar í ljóðasafni hans 1921 (2. útg. 1925). Buldi við brestur,
Skall yfir eldhafið ólgandi, logandi, brotnaði þekjan; reið niður rjáfur og rammir ásar. eldvargar runnu fram hvæsandi, sogandi. Reykurinn glóðþrunginn gaus upp úr kafinu gaflaðið eitt stóð sem klettur úr hafinu. Nár var þá Njáll
og nár var Bergþóra. Burtu var Kári og brunninn Grímur, Höggvinn Helgi — Héðinn stóð einn tepptur við gaflaðið og glotti við tönn. Gulrauðar glóðir glampa og braka; blóðroðin birta blaktir um garpinn; skín hún á andlitið skarpfölt og tannirnar, skiptandi blæ, meðan eldslogahrannirnar flétta úr eldtungum umgjörðir titrandi utan um hetjuna, bjartar og glitrandi. Hélt’ann á rammri
Rimmugýgi: „Hvað er nú, öx mín, hitnar þér nokkuð? þú skyldir eigi svo þurrmynnt vera, væri í annað en eld að bíta.“ Glaðlegur geisli glóði á blaði; stirndi í stál og stæltar eggjar. Skarphéðinn klappaði skínanda stálinu: „Skilaðu kveðju frá Héðni í bálinu“ öxina greip, og í gaflaðið hjó’enni griðastað langt inn í viðunum bjó’enni. Leit hann á eldbranda
aðfallandi: „Hæfir ei Héðni vopnlausum vera.“ Tók hann þá brennanda brand einn mikinn, horfði hlæjandi á hann og bálið. „Þú skalt, brandur, vopn mér vera, exi eldvafin að eldaþingi.“ Færðist að eldurinn brestandi, brakandi, báldrekar skriðu fram eldmakka skakandi, lögðust að fótum hans, fæturna sleikjandi flakandi tungum, og glóðmökkum reykjandi. Vitið að Héðinn
hita þolir, kempan kvað, og kyrtil sinn losaði hægt frá loðnu brjósti, brenndi þar kross með brandi sínum. Beit svo á kampinn, og krosslagði armana, kallmennskuró sló um ennið og hvarmana.
Ljómandi kringum hann logarnir kvikuðu ljósgeislar fagnandi á honum blikuðu. Dimmt er í skála,
dökkir mekkir hefjast úr ösku og hrundum rústum. Inni við gaflaðið í ösku stendur Héðinn örendur með opnum sjónum. Heyrzt ei hafði hósti né stunur. |