Jerúsalem | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Jerúsalem

Fyrsta ljóðlína:Hvort stigu forðum fætur hans
Höfundur:Blake, William
Bragarháttur:Fjórar línur (tvíliður) ferkvætt oaoa
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1966
Flokkur:Biblíuljóð
1.
Hvort stigu forðum fætur hans
á fjöllin bresku græn að lit?
Og bjó þá Herrans blessað lamb
við breska hagans ilm og glit?

2.
Skein guðdómssvipur helgi Hans
á hnjúkafjöll vor skýjagjörn?
Var Jerúsalem borg hér byggð
hjá bölvalds dökkri Gróttakvörn?

3.
Ég bið um gullna bogann minn.
Ég bið um þráðast örvamagn.
Ég bið um spjót. Ó, brostu sól.
Ég bið um stríðs míns logavagn.

4.
Án hvíldar sál mín sæki fram,
þótt sóknin verði löng og hörð
uns Jerúsalemborg er byggð
á Bretlands grænu, frjóu jörð.