Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
HangakvæðiFyrsta ljóðlína:Ó bræður í mannheimi, forðist þér fíflskap og spé
Höfundur:Francois Villion
Þýðandi:Jón Helgason prófessor*
bls.79 –80
Viðm.ártal:≈ 1925
1. Ó bræður í mannheimi, forðist þér fíflskap og spéer fram hjá þér gangið og lítið vort dauflega ról, því líknsamur drottinn mun láta yður miskunn í té ef leggið þeim gott til sem eiga sér hvergi neitt skjól. Hér höngum vér framliðnir fimm eða sex niðrúr ól, af fúnum og molnandi kjúkum er sorfið og nagað og rotnað það hold sem vér áður um of höfum plagað með óhóf og munúð að gera sem framast í vil. Því skopi sem hendið þér að oss er illa hagað, en ákallið drottinn, hann gefi hverjum vor til.
2. Ó berið þér eigi, sem bræður vér köllum, neinn þjóstí brjósti til vor, þó að *réttarans hönd hafi svipt oss lífi, því síður sem yður mun öllum það ljóst hve ójafnt með seggjum er forsjá og vitsmunum skipt. En úr því vér hlutum að þola svo þungbæra skrift, vér þrábænum yður á Máríu soninn að heita að þrotlausum uppsprettum náðar hann virðist að veita til vor, svo að eigi vér glötumst í fordæmdra hyl. Á andvana menn samir illa með snuprum að leita, en ákallið drottinn, hann gefi hverjum vor til.
3. Vér dökknum á hörund og skorpnum er sólin skín,vér skolumst af hryðjum, af moldryki sest á oss gróm, sjá reytt hafa hrafnar og skjórar vor skegghár og brýn og skarað í augun svo myrkholan gapir þar tóm. Sem fingurbjörg stungnir af fuglanna goggum og klóm vér fram og aftur dinglum sem golan sér vendir, á duttlungum hennar er örvænt að verði neinn endir, svo engin fær gefist oss hvíld eða ró nokkurt bil. Þess ráðlag er aumt sem í öðrum eins félagsskap lendir, en ákallið drottinn, hann gefi hverjum vor til. Þú konungur Jesús, er átt yfir alheimi ráð, lát yfirgang djöfulsins hreint ekki til vor fá náð, því síst er oss hugleikið honum að standa nein skil. – Þér eftir oss lifendur, afrækið glósur og háð, en ákallið drottinn, hann gefi hverjum vor til. |