Kveðja frá Íslandi til Noregs 17. maí 1914 | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kveðja frá Íslandi til Noregs 17. maí 1914

Fyrsta ljóðlína:Skerast firðir / fáránlegir
bls.235
Bragarháttur:Fornyrðislag
Viðm.ártal:≈ 1925
Tímasetning:1914

Skýringar

Kvæðið var prentað bæði í Ingólfi og Norðurlandi 1914.
1.
Skerast firðir
fáránlegir
inn í Noreg
frá opnu hafi.
Líkjast þeir örum
á andliti
karlmennis
sem kann ekki að tapa.
2.
Risinn drifhvíti.
Dofrakonungur,
gnæfir háleitur
við himin bláan.
Enginn mundi
svo ennisbjartur
dæma né hlíta
dómi röngum.
3.
Lít ég aftur
til liðins tíma.
Stíg yfir þröskuld
þúsund ára. —
Sé eg blóðug vopn,
brotna skjöldu
og hroðin skip
í Hafursfirði.
4.
Sigldu víkingar,
silfurrenndar
trjónur göptu
yfir gráum sævi.
Þá gaf Noregur
nýju landi
hlaðin skip
af höfðingjum.
5.
Óx ættartré,
aldir runnu,
breyttu landshættir
berki og limi.
En lífsmergurinn,
málið fagra,
er enn i dag
óhaggaður.
6.
Því munu allir
Íslands synir
fagna, Noregur,
frelsi þínu,
á meðan vötn
í vorhuga
brjóta hlekki
blárra ísa.