Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Ragna TuliníusFyrsta ljóðlína:Ertu dáin, unga silkilín?
Höfundur:Matthías Jochumsson
bls.466–467
Viðm.ártal:≈ 1900–1925
Tímasetning:1920
Flokkur:Eftirmæli
Skýringar
Undir heiti ljóðsins stendur:
(D. 1920) 1. Ertu dáin, unga silkilín?Eru slokknuð fögru ljósin þín? Ýfast sollnu sárin, sorgar vakna tárin. Kveð mér huggun, harpan gamla mín.
2. Horfin, farin, ung og ástúðleg?Einnig gengin sama dimma veg. Fórstu að finna mínar, félagssystur þínar, hjartarósir þær sem þrái ég?
3. Enga betri áttu vinu þær,andans snilld þér fylgdi nær og fjær. Ást og yndi bragna öllum varstu, Ragna. Ungra meyja unaðsperla skær.
4. Við, sem grátum okkar ungu blóm,æðrumst ei við lífsins skapadóm. Hvað er heimsins glaumur? Hvað er lífs vors draumur? Misskilningur mest og glys og gróm.
5. Er ei víst að, að líf og ljós er til,líf og ljós sem ekki er töfraspil? Upp til hæstu hæða hér er sorg og mæða. Þar er sífelld sól með elsku yl.
6. Líf er breyting, þróun öld og ár,eilíft líf sem græðir mein og sár. Vetur lífs vors líður, ljúfa vorið bíður, hverja lilju lífga nætur-tár.
7. Ragna, Ragna, ber þú heilsan heim,hjartanlega kveðju öllum þeim sem með ljúfu lyndi líkn þú varst og yndi. Svíf svo heil og sæl um Guðs þíns geim. |