Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Eggert ÓlafssonFyrsta ljóðlína:Þrútið var loft og þungur sjór
Höfundur:Matthías Jochumsson
bls.115
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1876
Flokkur:Minningar- og erfiljóð
1. Þrútið var loft og þungur sjór,>þokudrungað vor. Það var hann Eggert Ólafsson, >hann ýtti frá kaldri Skor.
2. Gamall þulur hjá græði sat,>geigur var svip hans í, hann mælti við Eggert Ólafsson: >„Mér ógna þau vindaský“.
3. „Ég sigli ei skýin, ég sigli sjá!“>svaraði kappinn og hló. „Ég trúi á Guð, en grýlur ei, >og gleð mig við reiðan sjó“.
4. Gamall þulur frá græði hvarf,>gegndi með þungri lund: „Þú siglir ei þennan sjó í dag, >þú siglir á Guðs þíns fund“.
5. Það var hann Eggert Ólafsson,>hann ýtti frá kaldri Skor, vindur upp segl og sjálfur við stjórn >settist með formanns þor.
6. Knúðu rastir knerrir tveir,>komið var rok um svið. Síðasti fugl úr fjarri Skor >flögraði á vinstri hlið.
7. Á búlkanum situr brúður ung,>bleik var hin göfga kinn: „Ó, Guð! sú báran er brött og há, >hún brotnar í himininn inn!“
8. „Hækkið þið seglin!“ hetjan kvað,>en Helja skjótari varð. Boðinn skall yfir bárumar – >í búlkann var komið skarð.
9. Það var hann Eggert Ólafsson,>frá unnarjónum hann stökk, og niður í bráðan Breiðafjörð >í brúðarörmun sökk.
10. „Það var hann Eggert Ólafsson“>– Íslands vættur kvað – „aldregi græt ég annan meir >en afreksmennið það“.
11. Ef þrútið er loftið, þungur sjór>og þokudrungað vor, þú heyrir enn þá harmaljóð, >sem hljóma frá kaldri Skor. |