Kvæði af Gunnlaugi og Sigurði | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kvæði af Gunnlaugi og Sigurði

Fyrsta ljóðlína:Sigurður lendir skipunum
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Sagnadansar
1.
Sigurður lendir skipunum
við eina ey.
Gulli voru þau búin
með fagri fley.
Svefn öngvan má eg sofa.
2.
Sigurður biður Sigríðar
sem hann kann.
Hún vill ekki eiga þann
hinn væna mann.
Svefn öngvan má eg sofa.
3.
Væn er hún Sigríður
systir þín.
Þó finnst annað fegra fljóð
á skipum mín.
Svefn öngvan má eg sofa.
4.
En so svaraði hann Gunnlaugur
og varð við reiður:
Ég skal gefa þér hringa tólf
ef það er ei.
Svefn öngvan má eg sofa.
5.
Sigurður gengur stuttan veg
til skipa sín.
Stattu upp, Sesselja,
systir mín.
Svefn öngvan má eg sofa.
6.
Sesselja klæddi sig
í stakkinn blá.
Silfrinu temprar hún
þar utan á.
Svefn öngvan má eg sofa.
7.
Sesselja klæddi sig
í safalaskinn.
So gengur hún í höllina inn
með meyjar fimm.
Svefn öngvan má eg sofa.
8.
Sesselja settist undir
drykkjuborð.
Ekki mælti hún Sigríður
við hana orð.
Svefn öngvan má eg sofa.
9.
Öllum þótti hún Sesselja
væn að sjá.
Þar lék henni Sigríði
öfundin á.
Svefn öngvan má eg sofa.
10.
So lyktaði kvæðinu
fyrr og nær.
Sigríður átti barn
við borgarþræl.
Svefn öngvan má eg sofa.

(Íslenzk fornkvæði I, bls. 15–17; AM 147 8vo, bl. 8v–9r)