Enn aðrar vísur af pínunni Kristí | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Enn aðrar vísur af pínunni Kristí

Fyrsta ljóðlína:Heyr þú, Jesús, hjálpin mín
bls.297–298
Bragarháttur:Samhent eða samhenda (alhent, ferstikla, stikla)
Viðm.ártal:≈ 1550–1600

Skýringar

Þó að sálmur sé merktur sem hymnalag í sálmabókinni og megi syngja við hymnalagsundirleik þá eru línur án reikiatkvæðis mun fleiri en hinar og því réttara að greina rímnaháttinn samhendu sem brag sálmsins.
Með hymnalag
1.
Heyr þú, Jesús, hjálpin mín,
af hjartanlegri mildi þín,
græðarinn fyrir gæsku sín,
gefi eg forðist fár og pín.
2.
Mína veit eg marga sekt,
mig hefur syndin ætíð blekkt,
elskuleysið of mjög frekt
og öllu góðu frá mér hnekkt.
3.
Í soddan hófi synda hér
sannlega eg vafður er,
marga og stóra eg meinsemd ber,
nema mildur Jesús hjálpi mér.
4.
Ef að eg skylda ömbön fá
eftir því sem von er á,
ofan í vítis eldinn blá
efunarlaust eg færi þá.
5.
Syndugum þú seldur varst,
soddan gæsku með þér barst,
þú vildir líða mikið og margt,
mildur Jesús, furðu snart.
6.
Veraldarmakt ei virðir þú,
veit eg þér þóknast ekki sú,
Guð á lítur góða trú,
gef hana mér í hjartað nú.
7.
Frómust þegar að fæddi þig
af fénu hafði ei auðgað sig,
því að með heyi huldi þig
herrans móðir elskulig.
8.
Aftur og fram um byggðir ber,
barnið góða Jesús fer,
léstu þetta líka þér,
að líða soddan ánauð hér.
9.
Grimmir Júðar gabb og dár
gjörðu að veita síð og ár,
þar með einninn barinn blár
og bundinn líka stundum sár.
10.
Síðan þig sem sagt er frá
sárlega negldu krossinn á
en þín móðir Máríá
mjög aumlega horfði á.
11.
Hörmuligt mun að hugsa á
hvað hún þoldi Máríá
þegar saklausan sætan sá
son sinn píndan krossi á.
12.
Veraldar trú eg varla eitt
víðfræg hefði yndið neitt,
heldur bæði hjartað heitt
og harmi þrungið sorgum meitt.
13.
Leiðstu þessa langa kvöl
en leystir mig við eilíft böl,
pínan þín var sár og söl_
og signuð ásján einka föl.
14.
Lagður spjóti ljúfur var,
Longinus í hendi bar,
hinir skóku höfuðið þar
hirðandi ekki um það par.
15.
Fyrir þessa kvöl sem þoldir þú
þig bið eg af hreinnri trú,
mér að veitist miskunn sú
minni sál að bjargir þú.
16.
Angrað hjarta aldri eitt
yfirgefur þú ekki neitt,
höldum_ þeim sem hafa þig beitt
hefur þú margar bjargir veitt.
17.
Lofar þú öllum líkn að fá,
lausnarinn, sem þig kalla á,
fyrir miskunn þína og mildi há,
mun eg þar ekki skilinn frá.
18.
Óguðlegum munntu mér
mildur lina ánauð þver,
þó eg hafi í heimi hér,
herrann, brotið á móti þér.
19.
Muntu nú fyrir mildi þín
minnast vilja, Drottinn, mín.
Lausnarans aldrei lofið dvín,
langtum fremur en sólin skín.