Til heilags anda | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Til heilags anda

Fyrsta ljóðlína:Meistarinn lærdómslista
bls.33
Bragarháttur:Dróttkvætt
Viðm.ártal:≈ 1600
Flokkur:Sálmar
1.
Meistarinn lærdómslista,
lifandi sannleiksandi,
af föðurnum fróðleikssæði
færir og syninum kæra.
Vér njótum víst nýrra ásta
og náðar af þeim báðum
fyrst þú býr í brjósti,
blessaður, gefinn til þessa.
2.
Heyr þú, skaparinn skæri
skilnings, hugar og vilja,
hjartað bið eg þú birtir
bæði og andann græðir.
Án þín allt mun reynast
óhreint, þó vér meintum
gott eða gagnlegt þætti.
Gáðu að mínu ráði!
3.
Kom þú, lifandi ljómi,
og ljóst gjör mínu brjósti
fyrirheit föðursins skæra,
það fann eg hjá Guðs spámanni.
Þar lofar oss herrann ljúfi
lifandi náðaranda
og bæn í hjartað hreina.
Hressir mig gáfan þessi.
4.
Eldur klár ertu, hinn mildi,
og af brennir saur þenna,
syndaryð, svo að ei grandi,
svart bræðir úr hjarta.
Kraftur þinn kann að svipta
krankleik hugarins þanka
og endurnæra styrk anda.
Yl þinn lát mig finna!
5.
Græðifingur þú þýðist,
þín smyrsl hjarta mínu
sæt mega heilnæm heita,
hrein í öllum greinum.
Smurning gefur þú gjarna,
græðir sál líf bæði,
handar Guðs hef eg til fundið,
hægra fingur mjög slyngan.
6.
Send þú oss ástaryndi
enn svo að föðurinn kenni,
hræring hjartans klára
hvört sinn öndu minni
að sonarins saklaus pína
mér sýni með krafti þínum
miskunnar Guðs gæsku
sem getur í helgu letri.
7.
Hvað get eg haft eða játað
hreina trú eða dygð neina
nema greindur guðdómsandi
mér gefi náð með því ráði,
orð Guðs að eg svo lærði
og af því skilji Guðs vilja,
að gestur sá búi í brjósti
blekkjast lætur mig ekki.
8.
Vondir villuandar
víða Guðs orð rangþýða
og svíkja svo hug veikan
sannkristinna manna.
Meistarar látast lista,
lærðir, sig af því stærðu.
Sýndu mér, sannleiksandi,
sanna grein, hvað þú meinar!
9.
Ástin Jesú Kristí
er innskrift sálar minnar,
gaf sá græðarinn ljúfi
góður sitt hold með blóði
til fæðu fyrir sinn dauða
í festing tryggðar besta.
Kenndu, kærleiksandi,
kraft þann rétt að sanna!
10.
Þykjunst eg við það veikjast
að vitringarnir krytja
um meining ranga raunar,
reyndar svo sem í leyndum,
en samtök engin aukast
mér ófróðum til góða.
Birtu minn hug og hjarta
um hreinar skilnings greinir!
11.
Hindra þú, heilagur andi,
hugargrand flærðaranda
sem alla vísa villir
nema veitir þú lífgan heita.
Vort hið veika hjarta
þú ver þegar á vill herja
brögðótt búin með slægðum
blekking djöfuls hrekkja.
12.
Send þú mér, sannleiksandi,
sáð til allra dáða,
hreina trú hjarta mínu
og heita elsku mér veitir.
Speki svo einninn aukist
að eg skilji Guðs vilja,
dygð réttu við drottin
svo dugi bæn hjartans væna.
13.
Minn líkama lækna sjúkan,
lifandi Guðs andi,
svo musteri klárt að Kristí
og kærast þitt að væri
en þeim innra manni
aftur gef þína krafta
lækning svo að þér þóknist
og þrenning rétt að kenna.
14.
Því fel eg þér, faðirinn kæri,
fyrst og Jesú Kristó
á hönd með heilögum anda
hjartað mitt og lífsparta.
Mig sem sjáldur þíns auga
sveimandi hér þú geymir
svo lofi eg þig alla ævi
og eftir líf sælu hreppti.


Athugagreinar

Amen!