Sú fyrsta áklögun Gyðinga fyrir Pílató | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 18

Sú fyrsta áklögun Gyðinga fyrir Pílató

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Árla, sem glöggt eg greina vann
bls.20r–21r
Bragarháttur:Tíu línur (tvíliður+) fer- þrí- og tvíkvætt:aBaBccDeeD
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Með lag: Sælir eru þeim sjálfur Guð
1.
Árla, sem glöggt eg greina vann,
með Guðs son bundinn fara
prestarnir so að píndist hann
til Pílatum landsdómara.
Í þinghús inn
það sama sinn
sagt er þó enginn kæmi
so ekki meir
saurguðust þeir.
Sjá hér hræsninnar dæmi.
2.
Inngang um húsdyr heiðingjans
héldu þeir synd bannaða.
Saurgast á blóði saklauss manns
sýndist þeim öngvan skaða.
Heimsbörnum hér
óvirðing er
aumstöddum hjálp að veita.
En Guðs orðs forakt,
ágirnd og prakt
engin misgjörð skal heita.
3.
Pílatus sem það formerkt fékk
fyrst ei þeim metnað sætti,
án dvalar sjálfur út því gekk,
embættisskyldu gætti.
Sakargift þá
vill fulla fá
framborna af þeirra munni.
Dáryrði fljót
drambsemi á mót
dómarinn gefa kunni.
4.
Lát þér ei vera afmán að,
ef þú vilt frómur heita,
af Pílató ljóst að læra það
sem loflegt er eftir að breyta.
Ranglætið hans,
þess heiðna manns,
halt þér minnkun tvefalda.
Þeim miður fer
en honum hér,
hvör vill þann kristinn halda?
5.
Álitið stórt og höfðingshátt
hræðast skyldir þú ekki.
Sannleiksins gæta ætíð átt,
engin kjassmál þig blekki.
Ærugirnd ljót,
hofmóðug hót,
hlýðir síst yfirmönnum.
Dramblátum þar
þú gef ansvar,
þó byggt á rökum sönnum.
6.
Öldungar Júða allra fyrst
upp báru sök þrefalda:
Fólkinu þessi frá snýr víst,
fyrirbýður að gjalda
keisarans skatt,
það segjum vér satt,
sjálfur vill kóngur heita
og Kristur sá
sem koma á
kvittun og frið að veita.
7.
Hér koma fram þau réttu rök
ræðu og þanka minna:
Þér, Jesú, gefin var þreföld sök,
það kann eg glöggt að finna.
Þrefaldleg sekt
mig þjáði frekt,
þar um eg klagast mætti.
Þrefalda styggð
og þunga lygð
þú leiðst með sögðum hætti.
8.
Frásnúið Guði allt mitt er
eðli og líf fáneyta.
Öðrum því gef eg oft af mér
illdæmi svo að breyta.
En hér á mót
með elsku hót
öll Guðs börn rétt því trúa,
frá bölvan, deyð,
djöfli og neyð
drottinn réð lýðnum snúa.
9.
Guði átti eg að greiða frí
gjald, hlýðni og þakkarskyldur.
Ranglega hef eg haldið því,
höndlað sem þræll ógildur.
Auðsveipnin þín
fyr öllum skín,
ástsemdarherrann kæri.
Þú bauðst: Gefeð,
gafst sjálfur með
hvað Guðs og keisarans væri.
10.
Sannlega hef eg hrokað mér
hærra en vera skyldi,
boð og skipun míns herra hér
haldið í minnsta gildi.
Kóngdóm í heim
og heiðri þeim
hafnaðir þú og flýðir.
Hátignin þín
á himnum skín,
hún mun birtast um síðir.
11.
Rægður varstu fyr ranga sök,
réttláti Jesú mildi.
Upp á það öll mín illskurök
afplánuð verða skyldi.
Áklögun sú
sem þoldir þú,
þess bið eg, herrann frómi,
sé mitt forsvar
þá finnst eg þar
fyrir þeim stranga dómi.


Athugagreinar

Amen