Önnur huggunarvísa í móti barnamissir | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Önnur huggunarvísa í móti barnamissir

Fyrsta ljóðlína:Sé þitt hjarta af sorgum mótt
bls.127
Bragarháttur:Fimm línur (tvíliður) fer- og sexkvætt aabbb
Viðm.ártal:≈ 1600
Tímasetning:1612
Önnur huggunarvísa í móti barnamissir
1.
Sé þitt hjarta af sorgum mótt
því sonurinn deyði þinn svo skjótt
hjartans móðir huggi þig,
það heilagur andi fræddi mig,
sá föðurnum þóknist flýtir hann mest á fund við sig.
2.
Því æska hans var ung og hrein
svo öngvum gjörði nökkurt mein,
betri en langur ellialdur
ef einatt verður synda valdur;
í hættu er sá sem hér vill búa við heimsins skvaldur.
3.
Skaparinn þekkir skepnu best,
því skeður það herrans börnum flest,
á dauðans tíma Drottinn skær
dásamlega er þeim nær
svo sem hans viskan veit að hvör muni vel til fær.
4.
Vér sjáum það oft að sóttin ströng
á sumum er bæði hörð og löng
svo ofraun margur af því fær
en sá Guði er hjartakær
í andartaki er einu kominn hans englum nær.
5.
Viti það Guð að veikist sá
er vill hann kalla heimi frá,
langa sótt ef líður hér
læknir svo með þetta fer,
þeim sviptir alri freistni frá í fylgd með sér.
6.
Mörg ógæfa hendir hér
í heimi þann sem blekktur er,
frá því er nú frelstur sá
hinn frómi sveinn svo ekki má
skaparans æðsta skólabörnum skiljast frá.
7.
Ykkar styrki um það trú,
eðalhjón sem grátið nú,
huggarinn sá sem hjörtun sér,
í himninum það mitt andvarp er
og gefi oss náð það gæsku hans aldrei gleymum vér.