Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
A 058 - Annar lofsöngur um Herrans Kristí pínuFyrsta ljóðlína:Jesús sem að oss frelsaði
Höfundur:Höfundur ókunnur
Þýðandi:Þýðandi ókunnur
Heimild:Sálmabók Guðbrands (1589). bls.xxxvi
Viðm.ártal:≈ 1575
Flokkur:Sálmar
Annar lofsöngur um Herrans Kristí pínu
[Nótur] 1. Jesús sem að oss frelsaði,einn var hann saklaus fundinn. Um miðnátt sem einn illvirki er fanginn og svo bundinn og færður óguðligum lýð, sem á hann lygi bera, hæða og lýta og hrækja með hvað guðspjöllin kunngjöra.
2. Á föstudagsins fyrstu stund,þó fyndist sökin engin, í Pílati hins heiðna hönd hafði sem einn morðinginn, fornam Kristum og friðhelgan fann og svo viðurkenndi. Því frá sér í haldi hann Heródí kóngi sendi.
3. Um þriðju stund að strýktur varog stóð sem lamb til dauða, þyrnikórónu þunga bar, þar með purpurann rauða, reyrlegg í hönd til háðungar, högg og spott varð að reyna. Til krosssetningar sjálfum sér sinn kross hann bar alleina.
4. Nær sjöttu stund að negldur varnakinn á krossinn Kristur og blóði sínu úthellti þar upp með krossinum reistur. Viðstaddir margir hæddu hann og hinn annar uppfesti. Guðlast það sól ei líða kann, ljóma sinn af því missti.
5. Um níundu hann hrópar hátt,horfinn kvað Guð sér vera. En þeir gallið og edik brátt að hans munni bera. Jesús þá sína önd upp gaf í tvennt tjaldið sér skipti, hristist jörðin harðliga af, hellum í sundur kippti.
6. Um kvöldsins tíma til var sagttveggja bein að menn brjóti. Síðast var þá í síðu lagt sjálfum Kristó með spjóti. Blóð og vatn þar strax út af rann. Uppfyllda Skrift þá segir. Jóhannes, því að það sá hann. Þessum þér trúa eigið.
7. En þegar daginn endaðiog mjög á kvöldið leið líka, þá kom Jósef að krossins tré Herrans Krists hold að taka. Vegliga sem þá siður var, smyrjandi það til grafar. Varðhaldsmenn síðan sátu þar, svo sem Mattheus skrifar.
8. Hjálp oss, ó, Jesú, herra kær,harða kvöl þú sem reyndir, að hlýðnir þér æ verðum vær og vörunst allar syndir. Dauðann þinn og hans sanna sök svo jafnan vér gaumgæfum, og þig, Drottinn, með ást og þökk ævinligana lofum. |