Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
* Sálmavísa til Heilags andaFyrsta ljóðlína:Heilagi andi herra Guð
Höfundur:Bjarni Gissurarson
Heimild:Litla vísnabókin 1757. bls.C7r (bls. 73–80)
Viðm.ártal:≈ 1675
Flokkur:Sálmar
Skýringar
Fyrirsögn:
„Psalm-vijsa til heilags anda. kvedenn af Saal. Sr. Biarna Gissurarsyne i Þijngmwla i Skrid-Dal.“ 1. Heilagi andi, herra Guð,hjálpin og skjólið manna! Hugga þú best í hverri nauð og hættum freistinganna. Sorgandi girnist sálin mín í sárri neyð að koma til þín svo tendrist trúin sanna.
2. Guð faðir og sonur sendi þigsyndugum lausn að bjóða. *Innföllin þín mjög elskulig efla best sálargróða. Ævinlega um allan heim ertu að safna flokki þeim sem taka vill trúna góða.
3. Heilagt Guðs ríki hér á jörð,háleit þín mildin styður, fyrirheitið, hans friðargjörð, fáráðum öllum býður þeim sem til hafa hug og lyst, heilaga trú á Jesúm Krist að fá og fella ei niður.
4. Hvörn dag fagnar nú hjartað mitthelst fyrir gáfu slíka að í samneyti sauða þitt sett hefur þú mig líka að eiga Guðs náð og elsku hans, íbúð þína og lausnarans, frið-gjöf og frelsið ríka.
5. Himneskar *vistir þínar þærþekkir mannskepnan eigi fyrr en þú visku og ljósið ljær sem lýsir að réttum vegi, birti mér aumum blindleik minn blessaður orðaljóminn þinn líf mitt svo leiða megi.
6. Sköpunarmynd í skírnar-sáskæra gafstu mér þína, helltir þú þér, minn herra, þá í hungraða sálu mína. Jesú Krists blóði jóstu mig jafnan svo mætti fyrir þig á mér hans skrúðinn skína.
7. Inn í kristninnar skrautið skærtskírður eg leggjast náði andar-fjör mitt svo endurnært yrði með þínu ráði. Þá var til reiðu ljósið lént, lifandi skilning fær það kennt hvörjum sem glöggt að gáði.
8. Auglýsir þú fyrir orðsins heyrnendurlausnarann sanna, að hann sé gefinn öllum einn ævinleg lausn syndanna. Hjartanu gefur hreina trú á herrann Jesúm sjálfur þú með ljósi manndyggðanna.
9. Verka þau bæði vilja og mátt,veikt dugir holdið ekki, hægt þú upplýkur hjartans gátt heilnæmt svo orðið þekki, tregafull sál að taki svo inn trúandi Jesúm, herra sinn, *svo varist synda flekki.
10. Jesú kornskera hér um heimheitir Guðs kristnin hreina. Færir þú jafnan flokki þeim forsjónarmenn alleina. Fölskum lærdómi forða þú, fagran sannleik og rétta trú lífsbraut þú lætur beina.
11. Auðmjúklega eg þakka þér,það *veit minn herrann sæti að lífsins orðið lýsti mér, ljós mitt og andar-kæti, veittir mér líka virðing þá að vaka yfir þínum lömbum smá svo hjörð sú hjálpast gæti.
12. Áminntu mína aumu sál,ó, Guð, heilagi andi, herra míns Jesú heit og mál að hafa í minnis landi. Hvönær sem kemur hryggðar-tíð huggaðu allan kristinn lýð svo angrið aldrei grandi.
13. Kross og freisting þá kremur og slærkveinandi sálu mína, vertu mér, Drottinn, veikum nær með volduga huggun þína. Samvisku-ró og hjartans hægð, himneska svölun, frið og nægð, í mér lát aldrei dvína.
14. Vitna þú anda mínum meðmörg þó þig neyðin særi að eg sé Guðs barn útvaleð alls þó eg sekur væri. Hressir önd mína huggun sú í hjarta mínu að kallar þú: Abba! Ó, faðir kæri.
15. Blíðan Jesúm, brúðguma minn,bið eg, þú herrann góði, hvörn daginn á mitt hjartað inn hans með rósfagra blóði sjálfur skrifir, svo mætti mér minning hans aldrei fyrnist hér þó viki veraldar gróði.
16. Gjörðu mitt saurugt hjarta hreint,helgun þín yfir mér ríki svo að eg bæði ljóst og leynt lífsins að brautum víki. Endurfæðingar ávöxtinn í mér framkvæmi styrkur þinn að svo frá illu víki.
17. Ástsemdar láttu eldinn þinní mér vera brennandi, hann vermi sál og huga minn, hvörn og einn rétttrúandi. Íbúð þín góð og elskulig endurlífgi og styrki mig að í þér stöðugur standi.
18. Fyrirheit Jesú fögur og góðfestu mér rétt í minni, blessaðu heilagt hold og blóð hans í kvöldmáltíðinni. Gef mér í trú að tíðka hér, til þess hjálpaðu, Drottinn, mér hjartað svo fögnuð finni.
19. Þína sjöföldu gifta gnægð,Guð, láttu yfir mig falla. Það er vors herra náðar-nægð sem náir um heiminn allan. Smurningar-balsam þetta þitt þíðir og tilbýr hjartað mitt til þín í trúnni kalla.
20. Helgasta ljósið helga mighreinum í Guðs sannleika, svo eg hann bæði þekki og þig, þú lát mig aldrei skeika Jesú lærdómi fögrum frá, fornan Adam í burtu slá; laga svo limina veika.
21. Náðar og bænar andinn erteilífur, þú minn herra. Sál og mitt hjarta hefur þú gjört herbergi þitt að vera. Andlegt reykelsi efldu þar elsku og bænar guðlegrar, víkur þá allt hið verra.
22. Slæmum óvin mig frelsa fráfast þó hann eftir herði. Ljóssins herskrúða lát mig ná og lyfta upp þínu sverði. Orð Guðs og heit innsigla víst í mér svo þau fyrir Jesúm Krist, amen, já, ætíð verði.
23. Afguðadýrkun allri fráafvend með sannleik þínum. Lífsins veginum leið mig á, leystan úr skaða og pínu. Ætíð láttu þinn ástarkoss upplýsa, helga, lífga oss alla með sætleik sínum.
24. Allan vil eg nú eiga þig,öllum skaltu mér ráða. Allan gef eg þér aftur mig, allan virðstu mig náða. Láttu mig allan laugast í lausnarans Jesú blóði því sem þvær af synda-gráða.
25. Heilnæma reisu, herra, gefhéðan þá burt skal venda, önd mína leys og að þér vef, æðstu kjör lát mig henda, að fara með ró í fögnuð þann sem frelsarinn Jesús, Guð og mann mér gaf fyrir utan enda. Athugagreinar
2.3 Innföllin] svo.
5.1 gystir] > vistir (KE) 9.7 varist svo] > svo varist. Breytt vegna stuðlasetningar(KE) 11.2 veit] óljóst [?] |