Formannavísur í Dritvík | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Formannavísur í Dritvík

Fyrsta ljóðlína:Þráins ára svalan sein
bls.211–216
Bragarháttur:Ferskeytt – hringhent (hringhend ferskeytla) – hringhenda
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Formannavísur

1.
Þráins ára svalan sein
á sundið Jára færist
svo kera báran Auðuns ein
ýtum klárum tærist.
2.
Mitt skal talið mærðar breitt:
mönnum alist friður,
formannsvalið greina greitt
grunnungs salinn viður.
3.
Mansöngs ljóðin engin enn
eg mun þjóðum bera,
mærðargróður sendi senn
Sviðri glóða hvera.
4.
Um Jónsson Bjarna fróðan fyrst
fræða hjarnar letur,
farið gjarnan fólk með tvist
fáknum tjarna getur.
5.
Á sér nafna næstan þar
njótur drafnar fýra.
Siglu hrafni um saltan mar
sá mun jafnan stýra.
6.
Þorvarð kenndur Sigurðsson,
svinnur bendir spanga,
Garðs- frá -enda Gauts frá kvon
gaukinn sendir ranga.
7.
Jón frá Akureyjum þar
oft með spaka lýði
lætur vakurt flóða far
um fossað blaka víði.
8.
Sigurð þá í Þórðarbúð
þjóðin sjái ríka,
um brimils lá á sinni súð
sigla gáir líka.
9.
Guðmund arfa Bjarna brátt
bragnar þarfir líta,
kann að starfa þegninn þrátt
á þiljukarfa nýta.
10.
Pálsson Einar ára gamm
óðum reynir fína,
þræðir beinan Þrymlings damm
með þegna hreina sína.
11.
Pétur vegi ála á
ára sveigir héra,
Höskuldseyju hraustur frá,
um Hymis meyju þvera.
12.
Sigurður Skarði frægur frá,
Fofnis jarðar veitir,
djúpið fjarðar æðir á
oft með harðar sveitir.
13.
Péturs arfi Bjarni býr
báru karfa að víði,
kann að starfa hugahýr
hvatt með djarfa lýði.
14.
Guðmunds niður, greindur Jón,
gengi friðar séður,
þræðir biðlaust fiskafrón
fleina viði meður.
15.
Sigurður, þræðir, sonur Jóns,
sínu græðis dýri,
þó vaxi æðið ála fróns,
álfur klæða skýri.
16.
Sigurður arfi Eggerts hreinn
út við karfa heiði
kann að starfa sá óseinn
sverðs með djarfa meiði.
17.
Fræðið segja seggjum má:
Sels um veginn freka
Bjarnareyjum Finnur frá
flæðar sveigir dreka.
18.
Gísla börinn greindur Jón,
grunnungs stör þó blaki,
leiðir knör á fiska frón,
frægðar ör, hinn spaki.
19.
Páll á sunda vökrum val
veiði stundar mætur,
son Guðmundar sels á dal
sveitir skunda lætur.
20.
Sonur Ara, svinnur Jón,
súða varann meður
varla spar um flæðar frón
á fáknum marar veður.
21.
Kaupstað Einar kenndur við
með knörr óseinan ára
snýr, og sveina, á marar mið
þó mögnuð kveini bára.
22.
Staðarhóli frægum frá
flæðar sólar verinn,
hann má róla um Ránar lá
rostungs bóla hérinn.
23.
Ljóð má efna af allfrægum,
Eyjólf nefna þýðir,
er frá Svefna sólundum
með sæmdargefna lýði.
24.
Hvítfaldandi hreinni voð
hirðir branda lætur
undan landi geisa gnoð
um geirhvals strandir, mætur.
25.
Ívars niður, Helgi hýr,
heilla smiður dáða,
Arnar- viður -bæli býr,
brims til skriðar láða.
26.
Þar hjá greina Guðmund má
græðis meyna viður,
Bjarnar- hreinu -eyjum á,
ungur fleina viður.
27.
Þorláks hraður hróðmögur,
hýr við staðinn marar,
gæðamaður Guðmundur
geisar vaðið knarar.
28.
Hugarstór til hylgrundar,
hjörs lét Þórinn synda
klyfjajórinn Kílmundar
í köldum órum vinda.
29.
Kann að róla um Ránar lá
með Rínar sólar Týra
Oddur Hólum frægur frá
fram við bólið lýra.
30.
Ötull barða einn lungur
undan varð ei skilinn,
er frá Skarði Arngrímur
yst við fjarðar hylinn.
31.
Sveitastjóra í Vallgangsvík
vel ei fór að telja,
því Hræsvelgs óra ógnin rík
áls um kórinn beljar.
32.
Yður færi ölið nú
Auðuns væru horna.
Sæmd og æra um Alvíss frú
álfum tærist þorna.
33.
Þessi falla lítil ljóð.
Lifni snjallra friður.
Blessi alla ýta þjóð
uppheims vallar smiður.

Appendix vísnanna
1.
Hrings ef selja hlýðir á,
harma styttir kvíða,
fer eg að telja formenn þá
fræga er hitti síðar.
2.
Og mín ræða felldi frá
um fýra Rínar meiði.
Út nú flæðir yfir þá
alda Gínars veiði.
3.
Ölduglað til ufsa hvels
Einar skríða lætur.
Heldur staðinn Helgafells
hjörva lundur mætur.
4.
Sels- frá -lóni Þorstein þá
þýðan talið getur,
rangaljónið lætur gá
lengi um hvalasetur.
5.
Formann Bjarna firðar sjá.
Fleygir linda mætur,
þó að harðni kólgan kná
knörrinn synda lætur.
6.
Sónar uni ölið við
Iðunn glóða boða.
Lóna funa Baldur bið
blíðan ljóðin skoða.