Um ræningjans iðrun | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 39

Um ræningjans iðrun

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Annar ræninginn ræddi
bls.37r--38r
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður+) þríkvætt AbAbCdCd
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Með lag: Einn Guð eg best ætti
1.
Annar ræninginn ræddi,
sem refsað í það sinn var,
herrann vorn Jesúm hæddi,
hann gaf þetta andsvar:
Ef þar von er til nokkur
að þú Guðs sonur sért,
hjálpa þér og svo okkur
úr þessum kvölum bert.

2.
En hinn þar upp á gegndi:
Ekki hræðist þú Guð.
Hverjum straffsheiftin hegndi,
hún var rétt forþénuð.
Við megum vel meðtaka
verkabetaling þann
en þessi er alls án saka.
Eftir það sagði hann:

3.
Hugsaðu til mín, herra,
þá heldur þú ríkið þitt.
Ást drottins ei nam þverra,
andsvar lét heyra sitt:
Sannlega þér eg segi,
sú er huggunin vís,
þú skalt á þessum degi
mér þjóna í Paradís.

4.
Sjá hér fyrst straffið synda,
sála mín, hryggilegt,
forherðing hjartans blinda
þó holdið kveljist frekt.
Gefðu mér, Jesú góði,
eg gegni vel hirting þín,
með trú og táraflóði
tjái þér brotin mín.

5.
Ræningjans iðran eina
athugum líka með.
Hann gjörði iðran hreina,
hataði illverk skeð.
Því sagði hann væru að vonum
verðlaunin ranglætess,
ávítun veitti honum,
sem vildi ei gæta þess.

6.
Hann trúði, á himnaríki
hefði vor Jesús ráð,
þó syndugra sýndist líki,
so treysti upp á hans náð.
Með blygðun og hrelldum huga
herrann sín minnast bað,
ljúflega lét sér duga
loforð ef fengi það.

7.
Hróp og háreysti gjörðu
heiðnir og Júðar þar
kringum krossinn á jörðu
með kalls, brigsl og háðungar.
Svaraði ei son Guðs neinu
þó sjálfan það gilti hann
en syndugs manns orði einu
án dvalar gegna vann.

8.
Sætt mér fyr sjónum skartar,
sæll Jesú, gæskan þín.
Þér gekk heldur til hjarta
hans neyð en sjálfs þíns pín.
Sama hefur þú sinni
við syndugar skepnur hér
því aldrei elsku þinni
aftur, minn herra, fer.

9.
Illvirkinn hafði unnið
ódæðaverkin stærst,
götu glæpanna runnið
greitt fram í dauðann næst.
En Jesús ekki vildi
á það neitt minnast nú;
so var mikil hans mildi;
mín sál, það hugleið þú.

10.
Enginn örvænta skyldi
þó iðrast hafi seint.
Söm er Guðs sonar mildi
sé annars hjartað hreint
því hvörki við staði né stundir
stíluð er drottins náð.
Allt fram andlátið undir
oss býðst hans hjálparráð.

11.
En þú skalt ekki treysta
óvissri dauðastund
né Guðs með glæpum freista
gjörandi þér í lund,
náðartíminn sé næsta
nógur höndum fyrer.
Slíkt er hættusemd hæsta,
henni Guð forði mér.

12.
So margt eg syndgað hefi,
sorgin mig sturlar nú.
Iðran Guðs náð mér gefi,
glóandi von og trú.
Herra Jesú hjartkæri,
hugsa þú til mín þá
dapur er dauðinn nærri,
og drag mig kvölum frá.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 162–167)