SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Passíusálmar 46Um teiknin sem urðu við Kristí dauðaBálkur:Passíusálmar
Fyrsta ljóðlína:Þegar Kristur á krossins tré
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.42v--43r
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar
Skýringar
Tón: Þá linnir hér mín líkamsvist
1. Þegar Kristur á krossins trékannaði dauðann stríða teikn og stórmerki mestu ske, mælir so ritning fríða. Musteristjaldið mjög umvent í miðju varð að rifna í tvennt. Hristist jörð harla víða.
2. Sundur klofnuðu björgin blá,byrgð leiðin opnast fóru, líkamir dauðra lifna þá; lít hér þau undrin stóru; eftir lausnarans upprisu inn í borgina vitjuðu, af sumum þar sénir vóru.
3. Hvað hér historían hermir rétt,hygg að því, sál mín mæta. Þér til lærdóms er það fram sett; þess áttu vel að gæta. Jörðin sjálf, þegar Jesús dó, jafnvel þeir hörðu klettar þó sýndu meðaumkun sæta.
4. Steini harðara er hjartað það,sem heyrir um Jesú pínu, gefur sig þó þar ekki að, ann meir gjálífi sínu. Kann nokkuð soddan kalt hugskot Kristí dauða að hafa not? Guð stjórni geði mínu.
5. Það má undra, hin þunga jörðþreyði ei kyrru að halda. Blágrýtis einninn björgin hörð bresti liðu margfalda. Holdið þó ei né hjartað manns hryggist við pínu skaparans sem hans þó hlaut að gjalda.
6. Fortjaldið sýnir sannleik þann,sundur þá rifna náði, af takast skyldi öll fyr sann, eftir Guðs settu ráði, Gyðingakynsins kóngleg stjórn, kennivaldið og lögmálsfórn sem ritning sjálf um spáði.
7. Hindrun réð öllum ærið stórinn í Guðs ríki banna. Því veldur syndasektin vór og saurugleikinn verkanna. En fyrir Jesú dýrstan deyð drottinn tilbjó oss opna leið héðan upp til himnanna.
8. Hér í kristninnar helgidómhöfum vér frelsi að ganga. Þar boðast náð og blessun fróm, burt er þá sorgin stranga. Sálin vor hefur búna braut beint í Abrahams gleðiskaut eftir heims hörmung langa.
9. Frelsarans dauða einninn aðönduð líkin hér njóta. Guðlegur kraftur gjörði það, grafirnar opnast hljóta því drottins Jesú dauði á kross dauðann sigraði fyrir oss, afl hans og brodd nam brjóta.
10. Merk að úr jörðu mátti ei neinnmaður frá dauðum standa fyrr en tjáði vor herra hreinn hold sitt aftur lifanda. Fyrstur allra því uppreis hann af eigin krafti og þar með fann endurlausn oss til handa.
11. Höfðinginn krossi herrans hjá,hér með allt fólkið líka, jafnsnart er soddan jarðteikn sjá, játning þeir gjörðu slíka: Sannlega hefur saklaus hann og sonur Guðs verið þessi mann; brjóst slá og brátt heim víkja.
12. Fólkið, sem harða krossins kvölKristó fyrst óska náði, fann nú hið þyngsta í brjósti böl, beiskleg samviskan þjáði. Of hastarlegan úrskurð flý ef þú vilt vera af sorgum frí. Hætt er rasanda ráði.
13. Dauðinn þinn, Jesú drottinn, þádýrlegan kraft út sendi. Heiðnum manni so hér við brá, hann þig Guðs son meðkenndi. Ég bið gæskunnar geðið þitt, gefðu við lifni hjartað mitt að so frá illu vendi. Athugagreinar
Amen
(JS 337 4to, bl. 42v–43r) (Sjá Passíusálmar 1996, bls. 184–187) |