Það fyrsta orð Kristí á krossinum | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 34

Það fyrsta orð Kristí á krossinum

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Þegar kvalarar krossinn á
bls.33v--34r
Bragarháttur:Sjö línur (tvíliður+) fer- og þríkvætt aBaBccB
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Með lag: Lifandi Guð, þú lít þar á
1.
Þegar kvalarar krossinn á
keyra vorn herra gjörðu
flatur með trénu lagður lá
lausnarinn niður á jörðu.
Andlitið horfði í þeim stað
og augun hans blessuð himnum að.
Hann stundi af angri hörðu.

2.
Sinn faðm allt eins og barnið blítt
breiddi mót föðurnum kæra.
Blóðið dundi og tárin títt,
titraði holdið skæra.
Hér skoða, maður, huga þinn,
hvað kunni meira nokkurt sinn
drottin til hefndar hræra?

3.
Óvinum friðar blíður bað
brunnur miskunnarinnar.
Hann vill þeir njóti einninn að
ávaxtar pínu sinnar.
Sagði: Faðir, þeim fyrgef þú,
forblindaðir ei vita nú
sjálfir hvað vont þeir vinna.

4.
Lausnara þínum lærðu af
lunderni þitt að stilla.
Hógværðardæmið gott hann gaf
nær gjöra menn þér til illa.
Blót og formæling varast vel,
á vald Guðs allar hefndir fel,
heift lát ei hug þinn villa.

5.
Þótt þú við aðra saklaus sért
sannlega skalt þess gæta,
samt fyrir Guði sekur ert,
sá á frjálst þig að græta.
Illir menn eru í hendi hans
hirtingarvöndur syndugs manns.
Enginn kann þess að þræta.

6.
Óvinum ills þó óskir hér,
ei minnkar heiftin þeirra,
óþolinmæði eykur þér,
afrækir boð þíns herra.
Þú styggir Guð með soddan sið,
samviskan mjög þar sturlast við,
böl þitt verður því verra.

7.
Upplýstu hug og hjarta mitt,
herra minn, Jesú sæti,
so að eg dýrðar dæmið þitt
daglega stundað gæti.
Þeir, sem óforþént angra mig,
óska eg helst að betri sig
so hjá þér miskunn mæti.

8.
Heimsins og djöfuls hrekkjavél
holdið þrálega villa.
Þess vegna ekki þekki eg vel
þó nú margt gjöri illa.
Beri so til eg blindist hér,
bið þú þá, Jesú, fyrir mér.
Það mun hefnd harða stilla.

9.
Eg má vel reikna auman mig
einn í flokk þeirra manna
sem í kvölinni þjáðu þig,
það voru gjöld syndanna.
En þú, sem bættir brot mín hér,
bið þú nú líka fyrir mér
so fái eg frelsun sanna.

10.
Fyrst þú baðst friðar fyrir þá
er forsmán þér sýndu mesta
vissulega eg vita má,
viltu mér allt hið besta
því eg er Guðs barn og bróðir þinn,
blessaði Jesú, herra minn.
Náð kann mig nú ei bresta.

11.
Allra síðast þá á eg hér
andláti mínu að gegna,
sé þá, minn Guð, fyr sjónum þér
sonar þíns pínan megna
þegar hann lagður lágt á tré
leit til þín augum grátande.
Vægðu mér því hans vegna.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 148–151)