SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Passíusálmar 23Um Kristí húðstrýkingBálkur:Passíusálmar
Fyrsta ljóðlína:Pílatus herrann hæsta
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.25r–v
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar
Skýringar
Með lag: Oss lát þinn anda styrkja
1. Pílatus herrann hæstahúðstrýkja lætur þar. Nakinn við stólpann stærsta strengdur þá Jesús var. Stríðsmenn með svipum hröktu hann. Sál mín, hér sjá og skoða hvað sonur Guðs fyr þig vann.
2. Helgasta holdið fríðafrá hvirfli iljum að drottni varð sárt að svíða, svall allt af benjum það. Hvör hans líkama limur og æð af sárum sundur flakti. Sú hirting mjög var skæð.
3. Blessaður dreyrinn dundidrottins lífsæðum úr, sem regn það hraðast hrundi himins í dimmuskúr. Blánaði hold en bólgnaði und. Sonur Guðs sárt var kvalinn saklaus á þeirri stund.
4. Ég var sem fjötrum færðurfangelsi þungu í, á önd og samvisku særður, syndin mín olli því. Sú dauðleg sálarsóttin hér um hvörja æð út sér dreifði. Ekkert fannst heilt á mér.
5. Svipan lögmálsins lamdilíf og sál heldur frekt. Óttinn kvalanna kramdi, kominn var eg í sekt. Banvænlegt orðið mitt var mein, hjartað af hryggðum stundi, hvörgi fékkst lækning nein.
6. Sástu þá, Jesú sæli,sár mín óbærilig. Til lausnar þínum þræli því léstu binda þig. Gekkst so undir þá grimmdarkvöl að eg kvittaður yrði við eilíft hryggðarböl.
7. Sjúkdóm minn sjálfur barstu,so varð eg heill með því. Hörmungum hlaðinn varstu, frá hryggðum er eg nú frí. Hegning þú leiðst so hefði eg frið. Benjar þínar mér bættu, bót sú þar átti við.
8. Hræðslan vill hjartað krenkjameð hörðum sorgarsting þegar eg gjöri að þenkja um þína húðstrýking. Aví, eg gaf þar efni til. Þú einn galst þrjósku minnar, þess nú eg iðrast vil.
9. Því fell eg nú til fóta,frelsarinn Jesú, þér. Láttu mig nafns þíns njóta, náð og vægð sýndu mér. Ég skal með hlýðni heiðra þig nú og um eilífð alla, þá huggar þú, herra, mig.
10. Gleðstu, mín sál, mig græddiGuðs sonar heilagt blóð. Þó synd og sorgin mæddi, sjá hér er lækning góð. Náð fyrir reiði nú er vís. Brot þrælsins herrann bætti, bar því síns föðurs hrís.
11. Skoða þú skyldu þínaskýrlega, sál mín, nú. Sonur Guðs sig lét pína so læknuð yrðir þú. Heilbrigð þjóna þú honum rétt með trú, hollustu og hlýðni. Haf gát á þinni stétt.
12. Þóknist honum að þjakaþitt hold örkumslum með, þýðlega því skalt taka. Þolinmótt hjartageð ásér drottinn og elskar best. Lausnara að líkjast þínum lof er þér allra mest.
13. Ekkert má sóma síður,síkátur þrællinn er þá herrann hörmungar líður. Haf slíkt í minni þér. Hryggðarmynd hans er heiður þinn. Lát mig það læra og halda, ljúfasti Jesú minn. Athugagreinar
Amen
|