Um falsvitnin og Kaífas dóm | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 13

Um falsvitnin og Kaífas dóm

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Foringjar presta fengu
bls.15r–16r
Bragarháttur:Sjö línur (tvíliður+) þríkvætt AbAbCCb
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Tón: Jesús Guðs son eingetinn
1.
Foringjar presta fengu
falsvitni mörg tilsett,
fúslega fram að gengu,
fullir með svik og prett.
Samhljóða urðu eigi
uppdiktað margt þó segi.
Jesús þá þagði slétt.

2.
Lærðu, ef lygum mætir,
lífsreglu, sál mín, hér:
Með forsi og þjóst ei þrætir,
þrálega so til ber,
hógvær þögn heiftir stillir,
heimskorður sannleik spillir
oft fyrir sjálfum sér.

3.
Hirt aldrei hvað sem gildir
að hætta á ósatt mál,
hvört verja eða sækja vildir,
verður það mörgum tál.
Munnur, sá löngum lýgur,
frá lukku og blessun hnígur,
hann deyðir sína sál.

4.
Sannleiksvitni þó segi
sekan mig Guði hjá
óttast þarf eg nú eigi,
afsökun hef eg þá:
Ljúgvotta lygi megna
leið Jesús minna vegna,
klögun mig frelsti frá.

5.
Kaífas frétti fyrstur
falsklega herrann að
sjálfur hvört sé hann Kristur
og so enn framar kvað:
Við sannan Guð þig eg særi,
ef sonur hans ertu hinn kæri
segðu oss satt um það.

6.
Jesús játar að stundu,
jafnframt því so nam tjá,
son mannsins sjá þeir mundu
sitja þaðan í frá
til kraftarins hægri handar
og hér eftir komanda
skærasta skýi á.

7.
Kennimann reif sín klæði,
kvað: Slíkt guðlöstun er.
Aðspyr með ógnabræði:
Um það hvað haldi þér?
Allt ráðið undir tekur:
Er hann víst dauðasekur,
soddan samþykkjum vér.

8.
Jesús ei ansa hirti
áður þá logið var
en Guðs nafn gjarnan virti,
gaf því Kaífas svar.
Lygð heims þó lítið sætir,
lausnarans dæmis gætir,
leita Guðs lofdýrðar.

9.
Hygg að og herm hið sanna
hvönær sem til er reynt,
hræðst ei hótanir manna,
halt þinni játning beint.
Gæt vel að geymir þetta,
Guðs orð og trúna rétta
meðkenndu ljóst og leynt.

10.
Kaífas lögsögn leiða
lært hafa margir enn.
Hvað sem höfðingjar beiða
hinir álykta senn,
vinskap sig villa láta,
viljandi röngu játa.
Forðist það frómir menn.

11.
Sú er mín huggun sama
sem þín var, Jesú minn,
krossinn þá að vill ama,
ofsókn og hörmung stinn.
Hjá þinni hægri hendi,
hér þó nú lífið endi,
fagnaðarnægð eg finn.

12.
Þér til guðlöstun lagði
ljúgandi kennimann,
dauðasekan þig sagði.
Sannlega úrskurð þann
átti eg að heyra heldur,
hart með réttu sakfelldur,
víst eg nóg til þess vann.

13.
Andlegt vald einum rómi
úrskurðar dauðann þér.
Drottinn í náðardómi
dæmir því lífið mér.
Þakka eg elsku þinni,
þú keyptir sálu minni
fríun og frelsi hér.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 74–79)