Um Jesú síðusár | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 48

Um Jesú síðusár

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Að kveldi Júðar frá ég færi
bls.44r--45r
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) ferkvætt AbAbAb
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Tón:Tunga mín af hjarta hljóði
1.
Að kveldi Júðar frá eg færi
til fundar greitt við Pílatum
og þess beiddu að ekki væri
önduð lík á krossinum,
því hátíðin var harla nærri.
Hér svo ritning greinir um.

2.
Stríðsmönnum hann bauð að brjóta
beinin þeirra, og so var gert.
Heljarstund því hrepptu fljóta
hinir tveir, sem greini eg bert
en Jesúm létu síns lífláts njóta,
limina hans ei fengu snert.

3.
Stríðsmann einn með heiftar hóti
harðlyndur gekk krossi að,
í lausnarans síðu lagði spjóti,
lagið nam í hjarta stað.
Blóð og vatn þar frá eg út fljóti.
Fyrir var áður spáð um það.

4.
Umhugað er einum drottni
allra sinna barna lík.
Í jörðu hér þó holdið rotni
huggun traust mig gleður slík,
hann vill ei týnist bein né brotni.
Blessuð sé sú elskan rík.

5.
Guð drottinn með gæsku ráði
gjörði Adams síðu af
fríða kvinnu fyrst á láði,
fast hann þó á meðan svaf;
vaknaður þess að vísu gáði
og veglegt henni nafnið gaf.

6.
Sofnaður á sinni síðu
sárið drottinn Jesús bar
svo af vatni og blóði hans blíðu
byggðist heilög kristnin þar;
náði hún eðla nafni fríðu
nær til himna stiginn var.

7.
Skoðaðu hvörninn skírnin hreina
skiljast nú með réttu á:
Að vísu jafnan vatnið eina
vor líkamleg augu sjá
en trúarsjónin, svo skal greina,
sonar Guðs blóð þar lítur hjá.

8.
Æ, hvað má eg sælan sanna
sankti Tómas, postula þinn,
þá síðu mátti hann sár þitt kanna,
sína hönd þar lagði inn.
Þú munt ei mér þjáðum banna
það að skoða, Jesú minn.

9.
Allar Jesú æðar stóðu
opnaðar í kvölinne.
Dreyralækir dundu og flóðu
um drottins líf og krossins tré.
Nægð af lausnargjaldi góðu
Guðs son fyrir mig lét í té.

10.
En so eg skyldi sjá og játa
sanna elsku drottins míns
vildi hann ekki læstar láta
lífsæðarnar hjarta síns.
Því er, sál mín, mikil úr máta
miskunnsemi lausnara þíns.

11.
Opnar dyr á arkar síðu
inn um gengu skepnurnar
sem sjálfur drottinn bauð með blíðu
bjargast skyldu inni þar,
fyrir vatnsins flóði stríðu
frelsi og líf þeim gefið var.

12.
Lífsins dyr á síðu sinni
setur Jesús opnar hér
svo angruð sála aðstoð finni
öll þá mannleg hjálpin þver.
Hvör sem hefur þar athvarf inni
frá eilífum dauða leystur er.

13.
Nói um sinn arkarglugga
upp til himins litið fékk,
haldinn dimmum hryggðarskugga,
hátt þá vatnsins flóðið gekk,
so hann mátti um síðir hugga
sólarljóma birtan þekk.

14.
Gegnum Jesú helgast hjarta
í himininn upp eg líta má.
Guðs míns ástar birtu bjarta
bæði fæ eg að reyna og sjá.
Hryggðarmyrkrið sorgar svarta
sálu minni hverfur þá.

15.
Guðs var máttug mildin prúða,
Móyses þá steininn sló,
út til allra Ísraels búða
ágætt svala vatnið dró,
hressti þyrsta, þjáða, lúða,
þeim so nýja krafta bjó.

16.
Þá sjálfur Guð á sonarins hjarta
sínum reiðisprota slær
um heimsins áttar alla parta
út rann svala lindin skær.
Sálin við þann brunninn bjarta
blessun og nýja krafta fær.

17.
Við þennan brunninn þyrstur dvel eg,
þar mun eg nýja krafta fá.
Í þessi inn mig fylgsnin fel eg,
fargar engin sorg mér þá.
Sælan mig fyrir trúna tel eg,
hún tekur so drottins benjum á.

18.
Hjartað mitt er, herrann góði,
hryggilega saurgað mjeg.
Þvo þú það með þínu blóði.
Þess af auðmýkt beiði eg.
Vinni mér bót á mæðu og móði
miskunnsemin guðdómleg.

19.
Hjartans innstu æðar mínar
elski, lofi, prísi þig.
En hjartablóð og benjar þínar
blessi, hressi, græði mig.
Hjartans þýðar þakkir fínar
þér sé, gæskan eilíflig.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 190–195)