Um varðhaldsmennina | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 50

Um varðhaldsmennina

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Öldungar Júða annars dags
bls.46r–v
Bragarháttur:Fimm línur (tvíliður) fer- og tvíkvætt aabbb
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

„Tón:“

Þar sem hér er aðeins nefnt „Tón“ en lags ekki getið mun eiga að merkja að sálmurinn sé „með sínu lagi“.

Sjá einnig: Passíusálmar 1996, bls. 198–201.
1.
Öldungar Júða annars dags
inn til Pílatum gengu strax,
sögðu: Herra, vér höfum mest
í huga fest
hvað sá falsari herma lést.

2.
Eftir þrjá daga ótt fyr sann,
upp rísa mun eg, sagði hann.
Við slíku er best að leita lags;
lát geyma strax
þessa gröf inn til þriðja dags.

3.
Máske líkið með leyndum hljótt
lærisveinar hans taki um nótt
og lýðnum segi það lyga skin.
Þá líst ei kyn,
þó verði sú villan verri en hin.

4.
Pílatus víst þeim var<ð>hald fékk.
Vaktin strax út af staðnum gekk,
gröfinni blifu herrans hjá
og so til sjá,
settu innsigli steininn á.

5.
Gyðinga hörð var heiftin beisk,
hjartans blindleiki og villan treisk.
Þeim kunni ei nægjast kvöl og bann
sem Kristur fann.
Líka dauðan þeir lasta hann.

6.
Forðastu soddan fíflskugrein
framliðins manns að lasta bein.
Sá dauði hefur sinn dóm með sér,
hvör helst hann er.
Sem best haf gát á sjálfum þér.

7.
Gyðingar vildu veita rýrð
vors lausnara upprisu dýrð.
En drottins vald og vísdóms ráð
þess vel fékk gáð,
verk sitt framkvæmdi víst með dáð.

8.
Hefði ei vaktin geymt og gætt
grafarinnar, sem nú var rætt,
orðsök var meiri að efast þá
hvört upp réð stá
drottinn vor Jesús dauðum frá.

9.
En þeir sjálfir, og er það víst,
upprisu drottins hafa lýst
þó kennimenn Júða af kaldri styggð,
kvaldir í blygð,
keyptu þá til að bera lygð.

10.
Öll svikráð manna og atvik ill
ónýtir drottinn þá hann vill.
Hans ráð um eilífð stöðugt stár
og stjórnin klár.
Slægðin dramblátra slétt forgár.

11.
Hvíli eg nú síðast huga minn,
herra Jesú, við legstað þinn.
Þegar eg gæti að greftran þín
gleðst sála mín.
Skelfing og ótti dauðans dvín.

12.
Sektir mínar og syndir barst
sjálfur þegar þú píndur varst.
Upp á það dóstu, drottinn kær,
að kvittuðust þær.
Hjartað því nýjan fögnuð fær.

13.
Þú grófst þær niður í gröf með þér,
gafst þitt réttlæti aftur mér.
Í hafsins djúp, sem fyrir spáð finnst,
þeim fleygðir innst.
Um eilífð verður ei á þær minnst.

14.
So er nú syndin innsigluð,
iðrandi sála kvitt við Guð,
eilíft réttlæti uppbyrjað
í annan stað.
Trúuð manneskja þiggur það.

15.
Dauðinn þinn, Jesú, deyði hér
dárlega holdsins girnd í mér.
Gröfin þín hylji glæpi mín
fyr Guðs augsýn.
Efli mér styrk upprisan þín.

16.
Steinþró míns hjarta úthöggvin sést.
Heilagur andi vann það best.
Líndúk trúar eg læt í té,
minn lausnare.
Ilmandi smyrsl iðrunin sé.

17.
So finni eg hæga hvíld í þér,
hvíldu, Jesú, í brjósti mér.
Innsigli heilagur andi nú
með ást og trú
hjartað mitt, so þar hvílist þú.

18.
Dýrð, vald, virðing og vegsemd hæst,
viska, makt, speki og lofgjörð stærst
sé þér, ó, Jesú, herra hár,
og heiður klár. Amen, amen um eilíf ár.


Athugagreinar

Amen