Það sjötta orð Kristí á krossinum | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 43

Það sjötta orð Kristí á krossinum

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Eftir að þetta allt var skeð
bls.40r--v
Bragarháttur:Hymnalag: aukin stafhenda
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Með lag: Allfagurt ljós
1.
Eftir að þetta allt var skeð,
edikið Jesús smakka réð,
þrótt og lífskrafta þverra fann.
Það er fullkomnað, sagði hann.

2.
Orð þíns herra með ást og trú
athuga skyldir, sál mín, þú.
Ef þeirra grundvöll sannan sér,
sæta huggun þau gefa þér.

3.
Fyrst skaltu vita að Guð út gaf
greinilegt lögmál himnum af.
Hann vill að skuli heimi í
hvör maður lifa eftir því.

4.
Algjört réttlæti ljóst og leynt,
líkama, sál og geðið hreint,
syndalaus orð og atvik með
af oss lögmálið heimta réð.

5.
Hugurinn vor og hjartað sé
í hreinni elsku rétt brennande,
fyr utan hræsni, bræði og bann
bæði við Guð og náungann.

6.
Hvör þetta gæti haldið rétt
honum var lífið fyrir sett
en ef í einu út af brá
eilíf fordæming við því lá.

7.
Enginn maður frá Adam fyrst,
eftir þann tíma hann syndgaðist,
fullnægju gat því gjört til sanns.
Gengur það langt yfir eðli manns.

8.
Óbærileg varð allra sekt,
eftir því drottinn gekk so frekt,
annaðhvört skyldi uppfyllt það
eða mannkynið fortapað.

9.
Jesús eymd vora alla sá,
ofan kom til vor jörðu á,
hæðum himna upprunninn af,
undir lögmálið sig hann gaf.

10.
Viljuglega í vorn stað gekk,
var sú framkvæmdin Guði þekk,
föðurnum hlýðni fyr oss galt,
fullkomnaði svo lögmál allt.

11.
En svo að syndasektin skeð
sannlega yrði forlíkt með
og bölvan lögmálsins burtu máð
beiska kvöl leið og dauðans háð.

12.
Þá hann nú hafði allt uppfyllt,
sem oss var sjálfum að gjöra skylt,
og bæta öll vor brotin frí,
berlega vildi hann lýsa því.

13.
Þess vegna herrann hrópa nam,
hartnær á krossi stiginn fram,
að oss í voru andláte
öll hans verðskuldan huggun sé.

14.
Soddan aðgættu, sála mín,
sonur Guðs hrópar nú til þín
hvað þér til frelsis þéna kann.
Það er fullkomnað, segir hann.

15.
Fullkomnað lögmál fyr þig er,
fullkomnað gjald til lausnar þér,
fullkomnað allt hvað fyr var spáð;
fullkomna skaltu eignast náð.

16.
Herra Jesú, eg þakka þér,
þvílíka huggun gafstu mér.
Ófullkomleika allan minn
umbætti guðdómskraftur þinn.

17.
Hjálpa þú mér so hjartað mitt
hugsi jafnan um dæmið þitt
og haldist hér í heimi nú
við hreina samvisku og rétta trú.

18.
Upp á þessi þín orðin traust
óhræddur dey eg kvíðalaust
því sú frelsis fullkomnan þín
forlíkað hefur brotin mín.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 174–177)