Þriðja orð Kristí á krossinum | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 40

Þriðja orð Kristí á krossinum

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Upp á ræningjans orð og bón
bls.38r--v
Bragarháttur:Hymnalag: aukin stafhenda
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Með lag: Skaparinn stjarna, herra hreinn
1.
Upp á ræningjans orð og bón
ansaði Guðs hinn kæri son:
Þú skalt, sannlega segi eg þér,
sæluvist hafa í dýrð hjá mér.

2.
Sjáðu með gætni, sál mín kær,
sönn iðrun hverju kraftað fær.
Upp á það dæmið er hér rétt
öllum til lærdóms fyrir sett.

3.
Reiði drottins þá uppegnd er
yfir ranglæti mannsins hér
iðranin blíðkar aftur Guð;
ei verður syndin tilreiknuð.

4.
Þó komi höstug hefndin bráð,
hrein iðran jafnan finnur náð,
mitt í standandi straffi því
stillist Guðs reiði upp á ný.

5.
Samviskuorma sárin verst
sönn iðran jafnan græðir best,
hugsvalar sál og huggar geð,
heilaga engla gleður með.

6.
Bæn af iðrandi hjarta hýr,
hún er fyr Guði metin dýr.
Herrann Jesús á hvörri tíð
henni gaf jafnan andsvör blíð.

7.
Sem Móyses með sínum staf
sætt vatn dró forðum steini af,
eins fær iðrandi andvarp heitt
út af Guðs hjarta miskunn leitt.

8.
Játning mín er sú, Jesú minn,
ég er sem þessi spillvirkinn,
já, öngvu betri fyr augsýn þín,
ef þú vilt reikna brotin mín.

9.
Kem eg nú þínum krossi að,
kannastu, Jesú minn, við það.
Syndanna þunginn þjakar mér,
þreyttur eg nú að mestu er.

10.
Alnakinn þig á einu tré,
út þínar hendur breiðande,
sárin og blóðið signað þitt
sér nú og skoðar hjartað mitt.

11.
Þar við huggar mín sála sig,
soddan allt leiðstu fyrir mig.
Þíns hjartadreyra heilög lind
hreinsar mig vel af allri synd.

12.
Krossins burt numinn kvölum frá
kóngur ríkir þú himnum á.
Herra, þá hér mig hrellir pín
hugsaðu í þinni dýrð til mín.

13.
Segðu hvörn morgun svo við mig,
sæti Jesú, þess beiði eg þig:
Í dag þitt hold í heimi er,
hjartað skal vera þó hjá mér.

14.
Í dag, hvörn morgun eg svo bið,
aldrei lát mig þig skiljast við.
Sálin, hugur og hjartað mitt
hugsi og stundi á ríkið þitt.

15.
Eins þá kemur mín andlátstíð
orðin lát mig þau heyra blíð:
Í dag, seg þú, skal sálin þín
sannlega koma í dýrð til mín.

16.
Herra minn, þú varst hulinn Guð,
þá hæðni leiðst og krossins nauð.
Þó hafðir þú með hæstri dáð
á himnaríki vald og ráð.

17.
Dauðanum mót mér djörfung ný
daglega vex af orði því:
Í dag þá líður ei langt um það,
leidd verður önd í sælustað.

18.
Ó, Jesú, séu orðin þín
andláts síðasta huggun mín.
Sál minni verði þá sælan vís
með sjálfum þér í Paradís.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 166–169)