Pílatí samtal við Gyðinga á dómstólnum | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 27

Pílatí samtal við Gyðinga á dómstólnum

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Pílatus heyrði hótað var
bls.28r–v
Bragarháttur:Hymnalag: aukin stafhenda
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Tón: Skaparinn stjarna herra etc.

Níunda, þrettánda og fimmtánda vers eru sett fram sem kvæðið „Konungstign Jesú“ í Skólaljóðum.
1.
Pílatus heyrði hótað var
honum keisarans reiði þar,
útleiddi Jesúm annað sinn,
uppsest þegar á dómstólinn.

2.
Gyðingum síðan sagði hér:
Sjáið, þar yðar kóngur er.
Þeir báðu: Tak þennan burt frá oss,
bráðlega lát hann deyja á kross.

3.
Skal eg krossfesta kóng yðvarn?
kallar Pílatus hæðnisgjarn.
Öngvan kóng, segja þeir aftur hér,
utan keisarann höfum vér.

4.
Guðspjallshistorían hermir frá,
heiti sá staður Gabbatá.
Háa steinstræti þýðir það.
Þar máttu, sál mín, gæta að.

5.
Vei þeim dómara, er veit og sér
víst hvað um málið réttast er,
vinnur það þó fyr vinskap manns
að víkja af götu sannleikans.

6.
Pílatus keisarans hræddist heift,
ef honum yrði úr völdum steypt.
Þetta, sem helst nú varast vann,
varð þó að koma yfir hann.

7.
Ó, vei þeim sem með órétt lög
umgangast og þau tíðka mjög,
sannleiknum meta sitt gagn meir,
svívirðing drottni gjöra þeir.

8.
Huga sný eg og máli mín,
minn góði Jesú, enn til þín.
Pílatus kóng þig kallar hér,
krossfesting Júðar óska þér.

9.
Víst ertu, Jesú, kóngur klár,
kóngur dýrðar um eilíf ár,
kóngur englanna, kóngur vór,
kóngur almættis tignarstór.

10.
Þó stóðstu bundinn þar fyrir dóm,
þó leiðstu hróp og kvala róm,
afsegja gjörðu allir þig;
undrar stórlega þetta mig.

11.
Ó, Jesú, það er játning mín:
Ég mun um síðir njóta þín
þegar þú, dýrðar drottinn minn,
dómstól í skýjum setur þinn.

12.
Frelsaður kem eg þá fyr þinn dóm,
fagnaðarsælan heyri eg róm:
Í þínu nafni útvalder
útvalinn kalla mig hjá sér.

13.
Kóng minn, Jesú, eg kalla þig.
Kalla þú þræl þinn aftur mig.
Herratign öngva að heimsins sið
held eg þar mega jafnast við.

14.
Háa steinstrætið heimsins sleipt
hefur mér oft í vanda steypt.
Þangað lét Jesús leiða sig
so líknin hans kæmi yfir mig.

15.
Jesú, þín kristni kýs þig nú,
kóngur hennar einn heitir þú.
Stjórn þín henni so haldi við,
himneskum nái dýrðar frið.


Athugagreinar

Amen