SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Passíusálmar 4Samtal Kristí við lærisveinanaBálkur:Passíusálmar
Fyrsta ljóðlína:Postula kjöri Kristur þrjá
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.5v--6v
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar
Skýringar
Með lag: Einn Guð skapari allra sá
1. Postula kjöri Kristur þrjáí kvölinni sér að vera hjá, bauð þeim: Vakið og biðjið víst, bráðleg freistni so grandi síst.
2. Strax sem Jesús um steinsnar nærsté fram lengra, þess gætum vær, allir sofnuðu sætt með ró. Sjálfur herrann einn vakti þó.
3. Áður var soddan um þig spáð,ásett fram kom nú herrans ráð. Þú hlaust Guðs reiðiþrúgu einn þreyttur að troða, Jesú hreinn.
4. Ef eg skal ekki sofna í synd,so er náttúran veik og blind, um steinsnar máttu eitt mér frá aldrei, minn Jesú, víkja þá.
5. Næturhvíldin mín náttúrlignóg er mér trygg þá veit eg þig hjá mér vaka til hjálpræðess. Hvört kvöld vil eg þig biðja þess.
6. Þrisvar Jesús til þeirra fórþví að hann mæddi pína stór. Hann bað Petrum með hýrri lund hjá sér að vaka um eina stund.
7. En hann sofnaði æ því meirso ekki vissi hann né þeir hvörju svöruðu honum þá. Herrans pínu mjög jók það á.
8. Mig hefur ljúfur lausnarinnleitt inn í náðargrasgarð sinn, vakandi so eg væri hér. Vitni skírnin mín um það ber.
9. Ungdómsbernskan, sem vonlegt var,vildi mig of mjög svæfa þar. Foreldrahirting hógværlig hans vegna kom og vakti mig.
10. Aldurinn þá mér öðlaðestá féll gjálífissvefninn mest. Kennimenn drottins komu þrátt, kölluðu mig að vakna brátt.
11. Fullvaxinn gleymskusvefninn sársókti mig heim og varð mjög dár. Dimman heimselsku dróst að með, dapurt varð mitt til bænar geð.
12. Þá kom Guðs anda hræring hreiní hjartað mitt inn sá ljóminn skein. En í heimskunni so eg svaf, sjaldan mig neitt að slíku gaf.
13. Fárlega var mín fíflskan blind.Forlát mér, Jesú, þessa synd, hvar með að jók eg hugraun þér en hefnd og refsing sjálfum mér.
14. Láttu þó aldrei leiðast þér,ljúfi Jesú, að benda mér. Hugsi til mín þitt hjartað milt, hirtu mig líka sem þú vilt.
15. Vil eg nú hjartans feginn fá,frelsari minn, að vaka þér hjá. Andinn til reiðu er í stað, of mjög holdið forhindrar það.
16. Jesús unnti með ljúfri lundlærisveinum að hvíla um stund því hann vorkynnti þeim og mér. Það eitt mín blessuð huggun er.
17. Síðast allra þá sá hann þarsvikaralið fyrir hendi var, bauð þeim: Vakið og biðjið best, burt er nú værðartíðin mest.
18. Soddan áminning, sála mín,sannlega skyldi ná til þín so þig ei skaði svefninn vær. Svikarinn er þér ekki fjær.
19. Dauðinn forræður fjörið þó,fyrr en varði því margur dó. Hann er í nánd þó sjáist síst, sérhvörn dag er hans áhlaup víst.
20. Dauðinn þá mætir dapur þér,dóminn hefur hann eftir sér. Djöfullinn bíður búinn þar, í bálið vill draga sálirnar.
21. Sjá þú vel til að soddan hersofandi komi ekki að þér. Í hreinni iðran því hvörn dag vak, herskrúða drottins á þig tak.
22. Bænin má aldrei bresta þig,búin er freisting ýmislig. Þá líf og sál er lúð og þjáð lykill er hún að drottins náð.
23. Andvana lík til einskis neytter að sjón, heyrn og máli sneytt. So er án bænar sálin snauð, sjónlaus, köld, dauf og rétt steindauð.
24. Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér,vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. Athugagreinar
Amen
(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 36–41) |