Yfir lög, yfir láð | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Yfir lög, yfir láð

Fyrsta ljóðlína:Yfir lög, yfir láð
bls.292
Viðm.ártal:≈ 1875
Yfir lög, yfir láð,
yfir lögöldu gráð
fer ég hart eins og vindur um veg, yfir veg,
og með skrúða og skraut
er mín skínandi braut
öll af öndunum lögð og með ljóma hún leiftrar svo framfaraleg.

Ég er hjörtunum hjá,
og ég horfi þar þá
þegar harmanna hella sér tár yfir brár;
og við gleðinnar glaum
og við geisandi straum
sit ég glaður og hugsjúkur horfi á hverfandi aldir og ár.

Og við fossanna nið
og við fuglanna klið
sit ég glaður og gleð mig í mér og í þér,
því að það er sú ást
sem mér aldregi brást –
ég er kaldur og heitur í hjarta og getið nú hver ég er.