SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3104)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (6)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (30)
Grýlukvæði (7)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (50)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (13)
Særingar (1)
Söguljóð (12)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (38)
Ævikvæði (5)
Ævintýrakvæði (3)
Passíusálmar 47Fertugasti og sjöundi PassíusálmurBálkur:Passíusálmar
Fyrsta ljóðlína:Kunningjar Kristí þá
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.167
Viðm.ártal:≈ 1650
Flokkur:Sálmar
Skýringar
Fertugasti og sjöundi passíusálmur
Um Kristí kunningja sem stóðu langt frá Tón: Ó, Jesú, elskuhreinn 1. Kunningjar Kristí þákrossinum langt í frá stóðu með þungri þrá, þessa tilburði sjá.
2. Var þar og viðstatt meðað vísu margt kvenfólkeð, sár Jesú fengu séð, sorgandi báru geð.
3. Af þessu, mín sál, þú sérsannlega hvörsu er valt allt í heimi hér. Haf slíkt í minni þér.
4. Dvínar og dregst í hléá dauðastundunne vinskapur, frændur, fé. Fallvalt hygg eg það sé.
5. Þó vildu vinirnerveita hjálp nokkra þér, vörn þeirra ónýt er, enginn dauðanum ver.
6. Lífinu hjúkrar höndþá herðir sóttargrönd. Hjálpa þó engin önd upphugsuð ráðin vönd.
7. Vinskap í synda sið,sála mín, þess eg bið, bittu ei veröld við viljir þú sofna í frið.
8. Hreinan vinskap halt þúvið herrann þinn Jesúm nú. Í helgri hjartans trú frá heimsins elsku þér snú.
9. Hann einn má hjálpa þérþá hjástoð mannleg þver, heim þig á höndum sér í himnasælu ber.
10. Það hér í sannleik séster sonur Guðs andaðest, sorgin þá særði mest sem hann elskuðu best.
11. Krists börn eru krossbörn,við Kristum hlýðnisgjörn. Hann sýnir þeim hjálp og vörn þó hörð sé sútarkvörn.
12. Þú skyldir þar að gá,þó þeir stæðu langt frá, allir samhuga sjá son Guðs kross festan á.
13. Komið svo, konur og menn,að krossinum Jesú senn. Þó nauðin þrengi þrenn þar fæst nóg lækning enn.
14. Kom þú, sál kristin, hér,sem kross og mannraunir ber. Settu fyr sjónir þér son Guðs sem píndur er.
15. Upp á hans heilög sárhorfi þín trúin klár. Það mýkir trega og tár, temprar allt sorgarfár.
16. Sértu, syndugur mann,særður um hyggjurann, horfðu beint upp á hann sem hjálp þér á krossi fann.
17. Hvör sem eirorminn leitaf Ísraelsmanna sveit, eitrið ei á þann beit, öll stilltist plágan heit.
18. So stór synd engin erað megi granda þér ef þú iðrandi sér í trúnni Jesúm hér.
19. Sé eg þig, sæll Jesú,so sem álengdar nú. Von mína og veika trú við bið eg hressir þú.
20. Þá eg sé sárin mínsærir mig hjartans pín. En sárin þá sé eg þín sorg öll og kvíðinn dvín.
21. Lát mig, ó, Jesú kær,aldrei svo vera þér fjær að sjái eg ei sár þín skær þá sorg og eymd mig slær.
22. Veit mér, eg verði og sévin þinn og kunninge. Þó hverfi heilsa og fé hjálp mun þá nóg í té.
23. Ég fel í sérhvört sinnsál og líkama minn í vald og vinskap þinn. Vernd og skjól þar eg finn. Athugagreinar
Amen
(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 186–191) |