Fjallið | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Fjallið

Fyrsta ljóðlína:Ég einblíni á ísþakta tindinn
bls.62
Bragarháttur:Átta línur (þríliður+) þríkvætt:AbAbCdCd
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1919
1.
Ég einblíni á ísþakta tindinn
er einmana stendur og frýs,
hve engilskær einstæðingsmyndin
þar ævilangt bústað ég kýs.
Ég veit ekki hvað þessu veldur
en víst er að þar finn ég yl
og innra í fjallinu er eldur
sem andi minn grefur sig til.
2.
Og verkið er veglega hafið,
ég vanda í öllu þar til,
og alltaf er grafið og grafið
því gullið ég handsama vil,
og alltaf er ylurinn meiri
og eitthvað sem dregur til sín
og gullkornin fleiri og fleiri —
þar fegursti gimsteinninn skín. —