Fyrir minni Jónasar Gíslasonar þegar Laxárbrú var vígð | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Fyrir minni Jónasar Gíslasonar þegar Laxárbrú var vígð

Fyrsta ljóðlína:hér er glatt við hængja slóð
bls.4
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) ferkvætt aabbcc
Viðm.ártal:≈ 1900
Tímasetning:1902
1.
Hér er glatt við hængja slóð
hér er líf og skemmtun góð.
Elfu gyrtan eyðistað
ei svo margur fótum trað
okkar liðnu ævistund,
er nú sækjum þennan fund.
2.
Laxamóðan misjafnt fríð,
man eg, oft á vorri tíð,
hjúpi íss þá hrinda vann,
hræddi röskan ferðamann.
Sagði glöggt í svölum nið:
,,Sjálfbyrgingur! Stattu við.“
3.
Hugvit manns og handa lag
hrósa sigri þennan dag.
Yfir tvískipt iðukast,
að sem hamrar kreppa fast,
traust og hagleg brú er byggð
bjálkum elfd og járni tryggð.
4.
En við það, sem önnur störf,
undirstöðu fyrst var þörf,
vel er stæðist straumfall hvasst
steina flug og jakakast,
löngu storkið funa flóð
fannst til þessa tegund góð.
5.
Stáli kantað stöplagrjót
stjörnum hvarma blasti mót
saman þrýst, sem þviti einn,
því ei sundrar máttur neinn.
Hér til þurfti hrausta mund
hagleiks vit og trúa lund.
6.
Hér til valdist hetja ein,
hetjan kennd við Ýmis bein.
Gamla Jónas Gísla nið
gamla Ísland kannast við.
Marga hrímnis hnútu sá
hreif og klauf í stykki smá.
7.
Vottar snilldar verklag hraust
vítt um landið þörf og traust
grjóti byggð af greindum höld
garða, brunna, veggja fjöld.
Hönd sú lengi haldi þrótt,
húmi seint að dauðans nótt.
8.
Hér til verks hann gamall gekk,
garp til fylgis hraustan fékk.
Hörð var klofin hella mörg,
hrutu neistar, stundu björg,
sem viö tröll þá móði með
Mjölnis valdur hamast réð.
9.
Heill sé gamla hetjan þér.
Hendur þínar lögðu hér
grundvöll fyrst aö gjörðri brú,
get eg, muni skoðast sú
óborinna ýta sýn
óbrotgjarna minning þín.
10.
Ferðarnenn úr ýmsri átt,
eins vort sveitarfélag smátt,
rétt sem virða verk þitt hér,
veit eg, eflaust munu þér
inna þýðlegt þakkar mál.
Þín svo veri drukkin skál.


Athugagreinar

6.2: Hann var nefndur Jónas grjótgarður