Tilgangur lífsins | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Tilgangur lífsins

Fyrsta ljóðlína:Mín ævi líður líkt og ferð
bls.8–10
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður+) fer- og þríkvætt aaBccB
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Mín ævi líður eins og ferð;
og innan skamms ég heima verð
hjá honum, sem mig sendi.
Þann reikningskap: hvert orðið er
mitt erindið á jörðu hér,
ég hlýt að inna' af hendi.
2.
Að líkjast Guði er lífsins mið;
að læra það, er erindið,
sem varðar velferð mína.
En hvernig líkst ég Guði get?
Það Guð mér birti, því hann lét
sinn son það kenna' og sýna.
3.
Hann kenndi' um föður kærleikans:
að kærleikur er líking hans
með hjartans hreinleik sönnum.
Að langtum dýrri en lífið hér
þá líking guðdóms meta ber,
það sjálfur sýndi' hann mönnum.
4.
Guðs líking sönn er sæla hrein.
Til sælu þeirrar leið er ein:
að fylgja Kristi kæra.
Guð! til að velja veginn þann
þú víst mig sendir heims í rann.
Hann ganga lát mig læra.
5.
Að verða góðgjarn veit mér náð;
að vinna nytsemd auk mér dáð;
mig styrk í stöðuglyndi.
Já gef, að hvað sem gjöri' eg hér,
það gjöri' eg allt til dýrðar þér.
Þín elska sé mitt yndi.
6.
Ó gef, nær heim þú heimtir mig,
ég hæfur komi fyrir þig,
en reiknist rækur eigi.
Á þér er traust mitt. Legg mér lið,
að lúkist þannig erindið
að loknum lífsins vegi.