Á sumardaginn fyrsta | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Á sumardaginn fyrsta

Fyrsta ljóðlína:Í dag rétti sumarið heilsandi hönd
bls.408
Bragarháttur:Sex línur (þríliður+) fer- og þríkvætt:aaBccB
Viðm.ártal:≈ 1900
Tímasetning:1891
1.
Í dag rétti sumarið heilsandi hönd
að hjarnlausa dalnum, með lækjanna bönd
og vatnanna menjunum miklum,
sem hrukkast í vindinum. Vesturs til flýr
hann vetur og hleypir í deyjandi brýr
frá Skollakoll* hretskýja hnyklum.
2.
Öll grundin er hnípin og haustföl á brá,
en herðarnar fallegu steypt hafa á
þó hlíðarnar graskápu grænni.
En skrúðgræna furan það einasta er,
sem aldrei úr hátíðaspjörunum fer,
og enn er hún öspinni vænni.
3.
Er dagrenning vakti mig, virtist mér kalt,
því vetrarnótt seinasta kvatt hafði allt
með hélunnar grásilfur-hringum;
en í því reis sólin og sumarið nýtt,
og sveipaði allt, bæði frosið og þítt,
sinn gullsetta geislahjúp kringum.


Athugagreinar

* Skollakollur : Devil’s Head. Hnjúkur í Klettafjöllum.