Nikulásvísur I | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Nikulásvísur I

Fyrsta ljóðlína:Nikulam skulu vér heiðra hér
bls.401–403
Bragarháttur:Sekvensa
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) aaaaaaaa
Viðm.ártal:≈ 1300–1550
Flokkur:Helgikvæði

Skýringar

Ath. í fysta erindi ríma 1., 2., 4., og 5. lína allar en næstu tvö erindi fylgja hættinum. Fjórða erindi er undir öðrum hætti.
1.
Nikulam skulu vér heiðra hér,
hefi eg það traust hann bjargi mér
af vosi og vanda.
Í Licía lýðrinn hver
lofgjörð hafa þar sett á kver
honum til handa.
2.
Jarteigna blóm ritað er ríkt,
rétt finnst ekki annað slíkt,
lesið af lífi.
Víða um lönd að sjónum sast,
segi eg hans miskunn aldregi brast
í kvalanna kífi.
3.
Kóngar, jarlar krjúpa til þín,
kenna blíðast heilsuvín
brögnum bæta.
Óleum mjúkt af steinþró stár,
styttir pínu og harðlig fár
sykurið sæta.
4.
Sjúkra heyrir hljóð
harm ef syrgja fljóð,
blindir, daufir, barnung jóð,
brögnum veittist líknin góð,
miskunn Nikulás mjúk og rjóð
miklu er betri en gull í sjóð.
Hann minnkar móð
mætri þjóð.