Ferskeytt – framhent (mishent) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Ferskeytt – framhent (mishent)

Kennistrengur: 4l:[o]-x[x]:4,3,4,3:aBaB
Innrím: 1A,1B;2A,2B;3A,3B;4A,4B
Bragmynd:
Lýsing: Í þessum hætti mynda fyrsta og önnur kveða hverrar línu aðalhendingar langsetis.
Fyrsta vísa í fjórðu rímu Dámusta rímna er undir þessum hætti en annars er sú ríma undir ferskeyttum hætti frumframhendum. Dámusta rímur eru líklega frá 15. öld og svo er einnig um Landrésrímur en áttunda ríma þeirra er undir hættinum. Einnig er þessi háttur á tuttugustu og annarri rímu af Vilmundi viðutan eftir Hall Magnússon (d. 1601).

Dæmi

Gerð var ferð af glöðum hug.
Geng ég lengi hærra.
Hækkar, stækkar dirfskudug
dáðaráðið stærra.
Sveinbjörn Beinteinsson: Háttatal, bls. 1 (4. vísa)

Lausavísur undir hættinum