| Kvæðasafn Borgfirðinga
Kvæðasafn Borgfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA7

Presturinn byggir hús sitt á tveimur hæðum


Um heimild

Fyrri vísan er skráð eftir tölvupósti frá Sigurði Sigurðarsyni dýralækni til skrásetjara, Kristjáns Eiríkssonar, 16. febrúar 2012, en sú seinni eftir tölvupósti frá Jóhönnu Skúladóttur skjalaverði, 17. janúar 2014, sem hefur vísuna þannig eftir Sigurjóni Valdimarssyni á Glitstöðum og Jóni Blöndal Langholti, nágranna Jakobs.
Presturinn byggir hús sitt á tveimur hæðum
á hellubjargi, enda er í gömlum fræðum
aðstæðum slíkum hrósað á ýmsa lund.
Á efri hæðinni er ætlunin að prestur
ákalli drottinn og stundi sinn bænalestur.
Á neðri hæðinni ávaxtast auðsins pund.

og hin:


Mótin fyllast meðan drottins andi
mildur svífur yfir þessu landi
heiður og hreinn.
Við horfum yfir handarverk að lokum
hér var steypt úr fjöldamörgum pokum
utan um einn.