| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12

Björt og fögur er framtíðin


Tildrög

 Ferguson dráttarvélar voru lengi vinsælar í sveitum landsins. Athygli vakti þegar Andrésar bretaprins og Ssra Ferguson gengu í hjónaband að brúðurinn bar sama nafn og hin vinsæla dráttarvél.
Björt og fögur er framtíðin,
fögnuður ríkir og það er von.
Nú ertu kátur nafni minn,
nú ertu kominn á Ferguson.

Er rennur á nótt í ríki þínu
hjá rauðhærðu Söru þú háttar vel
En fyrr má nú gera í gamni sínu
en giftast þvílíkri dráttarvél.