| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12

Í bernsku ég eignaðist krúnótta kind


Tildrög

Vísurnar fylgdu birtingu myndar af á.
Í bernsku ég eignaðist krúnótta kind
sem kynni ég núna á þessari mynd.
Eins vetra í maíbyrjun sextíu og sjö
sett' ún í heiminn, lömbin sín tvö.

Frjósöm mjög var hún með svarthvítan svip
í sveitinni átt'enginn þvílíkan grip.
Hún mjólkaði vel og móðir var góð
og mikið af lömbum í veröldu hlóð.

Tíu ár liðu og ævin var öll
ekki var framar því hlaupið um völl.
Lífshlaupi hennar var lokið að sinni
lýk ég nú sögu af kindinni minni.


Athugagreinar