Gjöfin | Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (113)

Gjöfin

Fyrsta ljóðlína:Ég veit ekki hvort þú hefur
Heimild:Fésbók.
Viðm.ártal:≈ 0
Ég veit ekki hvort þú hefur
huga þinn við það fest,
að fegursta gjöf sem þú gefur,
er gjöfin sem varla sést.

Ástúð í andartaki,
augað sem glaðlega hlær,
hlýja í handartaki,
hjartað sem örar slær.

Allt sem þú hugsar í hljóði,
heiminum breytir til.
Gef þú úr sálarsjóði
sakleysi, fegurð og yl.