Unuhús | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Unuhús

Fyrsta ljóðlína:Ég geng oft framhjá Unuhúsi
Höfundur:Eyþór Árnason
bls.8. árg. bls. 38
Bragarháttur:Óháttbundið ljóð
Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:2010
Ég geng oft framhjá Unuhúsi

Einn daginn stoppaði ég,
hallaði mér upp að
rauðmáluðum fjölunum,
gróf mig inn í viðinn og hlustaði,
leit samt öðru hvoru upp til að vita
hvort snillingarnir köstuðu
ekki út bréfkúlum með andagift
sem þeir væru hættir að nota

Þarna dvaldi ég lengi,
fólk gekk hjá; menn með barnavagna
stígvélaðar konur á hraðferð

Þegar ég hrökk upp og lagði af stað heim
tók ég eftir því ég hafði fengið stöðumælasekt
fyrir að standa of lengi í innblæstrinum.