| Kvæðasafn Borgfirðinga
Kvæðasafn Borgfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA7

Við það hlýnar hugur minn

Bls.61


Um heimild

Vísan stendur ásamt fleiri vísum Jóhannesar á eftir grein um þau hjón, Eyjólf Jóhannesson og Helgu Guðmundsdóttur í Hvammi, eftir Jón Sigurðsson frá Haukagili.

Skýringar

Fyrirsögn: Seinasta vísa E. J.
Við það hlýnar hugur minn,
hret þó gíni og freyði,
senn að dvíni svakviðrin
og sólin skíni í heiði.