| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2


Tildrög

Síðasta vísa hans. Hafði hann komið að Grund í Eyjafirði og beiðst gistingar. Magnús bóndi hafði ekki tekið vel á móti honum og fór Sveinn þaðan í hálfgerðu fússi að næsta bæ Hólshúsum. Var hann þar um nóttina. Morguninn eftir kvað hann vísuna og var dáinn nokkrum augnablikum síðar að sögn Páls Halldórssonar á Siglufirði 1911.
Mig langar til að lúra fram á daginn
því lungun eru hvergi nærri góð.
Og svo er líka svangur nokkuð maginn
og sálin hvergi nærri laus við móð.