SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3065)
Afmæliskvæði (14)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (6)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (30)
Grýlukvæði (6)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (7)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Náttúruljóð (50)
Rímur (204)
Sagnadansar (36)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (13)
Særingar (1)
Söguljóð (9)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (4)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (38)
Ævikvæði (5)
SöknuðurFyrsta ljóðlína:Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað?
Höfundur:Jóhann Jónsson 1896-1932
Heimild:Íslenzk nútímalýrikk. bls.99–101
Viðm.ártal:≈ 0
1. Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað? Og ljóðin, er þutu um þitt blóð frá draumi til draums, hvar urðu þau veðrinu að bráð, ó barn, er þig hugðir borið með undursamleikans eigin þrotlausan brunn þér í brjósti! hvar? 2. Við svofelld annarleg orð,sem einhver rödd lætur falla á vorn veg — eða að því er virðist, vindurinn blæs gegnum strætin, dettur oss, svefngöngum vanans, oft drykklanga stund dofinn úr stirðnuðum linum. Og spunahljóð tómleikans lætur í eyrum vor lægra. Og leiðindin virðast í úrvinda hug vorum sefast. Og eitthvað, er svefnrofum líkist, á augnlok vor aldar, vér áttum oss snöggvast til hálfs, og skilningi lostin hrópar í allsgáðri vitund vor sál: Hvar? 3. Ó hvar? Er glatað ei glatað?Gildir ei einu um hið liðna, hvort grófu það ár eða eilífð? Unn þú mér heldur um stund, að megi ég muna, minning, hrópandi rödd, ó dvel! 4. En æ, hver má þér með höndum halda,heilaga blekking! Sem vængjablik svífandi engla í augum vaknandi barna ert þú hverful oss, hversdagsins þrælum . . . . Og óðar en sé oss það ljóst, er undur þitt drukknað í æði múgsins og glaumsins. 5. Svo höldum vér leið vorri áfram, hver sína villigötu,hver í sínu eigin lífi vegvilltur, framandi maður; og augu vor eru haldin og hjörtu vor trufluð af hefð og löggrónum vana, að ljúga sjálfan sig dauðan. 6. En þei, þei, þei — svo djúpt sem vor samviska sefur,oss sönglar þó allan þann dag við eirðarlaus eyrun eitthvað því líkt sem komið sé hausthljóð í vindinn, eitthvað því líkt sem syngi vor sálaða móðir úr sjávarhljóðinu í fjarska . . . . Og eyðileik þrungið hvíslar vort hjarta hljótt út í bláinn: Hvar? . . . . Ó hvar? |