A 303 - Barna morgunbæn af catechismo Lutheri. | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

A 303 - Barna morgunbæn af catechismo Lutheri.

Fyrsta ljóðlína:Guð, minn faðir, eg þakka þér
Bragarháttur:Hymnalag: aukin stafhenda
Viðm.ártal:≈ 0
Barna morgunbæn af catechismo Lutheri.
Með sama lag.*

1.
Guð, minn faðir, eg þakka þér
þinn son, Jesúm, að gafst þú mér
líf mitt og sál umliðna nótt,
leystir frá voða, eymd og sótt.
2.
Þig bið eg og um þenna dag,
þyrm mér með náð og sjá minn hag
svo ólukka og illska ei nein
á mig falli né gjöri mein.
3.
Frá öllum syndum forða mér,
fylgd þín blessuð mig leiði hér
svo öll mín hegðun þóknist þér.
Þig óttist einn sem skyldugt er.
4.
Eg fel í þína helgu hönd
hold mitt, sæmd, vini, líf og önd.
Engill þinn sé mér ætíð hjá.
Andskotann lát ei til mín ná.


Athugagreinar

* Þ.e. með sama lag og sálmurinn á undan: Christe qui lux.