Lýrisk ástavísa | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Lýrisk ástavísa

Fyrsta ljóðlína:Um miðjan júní var það, þegar moldin fór að anga
bls.131–132
Viðm.ártal:≈ 1250
Flokkur:Gamankvæði
1.
Um miðjan júní var það, þegar moldin fór að anga
og margir tóku stúdentspróf og hresstu sig á tári,
þá gekkst þú út í sólskinið með gleðibros um vanga
og geislar vorsins dönsuðu í þínu brúna hári.
2.
Hver hreyfing þín var létt, eins og léki blær í grasi,
sem liði bára á vogi í ferskum töfrum sínum,
og aldrei vissi ég neina svo yndislega í fasi.
Í engu fannst þér nokkur lík af stallsystrunum þínum.
3.
Því hvar sem þú í sólskini sumardaginn langan
fórst sviflétt eins og vængjuðu álfabörnin forðum
varð tilveran sem þrungin af unaðslegri angan
sem aðeins verður skynjuð en tæpast lýst í orðum.
4.
Við hittumst kvölds og morgna, þá hafði ástin völdin.
Það haustaði og snjóaði og svo var kominn vetur,
og augnablikin liðu, ég sat undir þér á kvöldin,
og engin hefur nokkru sinni launað mér það betur.
5.
En það er stundum sviplegt þegar hrynja glæstar hallir.
Nú hefur þú í bili tapað öllum sjönsum þínum,
því draumarnir um þig reyndust einskisvirði allir
og önnur slær nú metin í reikningunum mínum.
6.
Já, það var mikil ólukkans skaði að þeirri skitu
sem skyndilega fékkstu og aldrei þornað getur,
því þú varst besta kýrin mín með fjögurra prósent fitu
og í fimmtán mörkum enn þótt þú bærir snemma í vetur.