SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3127)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Skarphéðinn í brennunni [endanleg útgáfa höfundar]Fyrsta ljóðlína:Buldi við brestur
Höfundur:Hannes Hafstein
bls.60
Viðm.ártal:≈ 1925
Tímasetning:1882
Skýringar
Kvæðið eins og Hannes gekk frá því sjálfur til útgáfu í endanlegri gerð og birtist í ljóðasafni hans 1921 (önnur prentun, 1925). Stafsetning er hér samræmd til nútímahorfs.
Sjá einnig kvæðið eins og það birtist í upphaflegri gerð í Verðandi 1882. Buldi við brestur,
Skall yfir eldhafið ólgandi, logandi, brotnaði þekjan; reið niður rjáfur og rammir ásar. eldvargar runnu fram hvæsandi, sogandi. Reykurinn glóðþrunginn gaus upp úr kafinu. Gaflaðið eitt stóð sem klettur úr hafinu. Nár var þá Njáll
nár var Bergþóra. Burtu var Kári, brunninn Grímur, Höggvinn Helgi — Héðinn stóð einn tepptur við gaflað og glotti við tönn. Gulrauðar glóðir glampa og braka. Blóðroðin birta blaktir um garpinn. Skín hún á andlitið skarpfölt og tannirnar, skiptandi blæ, meðan logagráðs hrannirnar flétta úr eldtungum umgjörðir titrandi utanum hetjuna, bjartar og glitrandi. Hélt hann á rammri
Rimmugýgi: „Hvað er nú, öx mín, hitnar þér nokkuð? þú skyldir eigi svo þurrmynnt vera, væri í annað en eld að bíta.“ Gunnspáir glóðu geislar á hyrnu stirndi í stál og stæltar eggjar. Skarphéðinn klappaði skínanda stálinu: „Skil ég þig, öx mín, ber kveðjur úr bálinu.“ Hefndþrungna bengýgi hóf upp og lét’ hana hverfa í gaflaðið, langt upp á fetana. Leit hann á eldbranda
aðfallandi. Hvað var í huga Höskulds bana? Kominn bónleiður til búðar hinstu eldibrand tók sér í axar stað. Aleinn örlögum ofurseldur horfðist í augu við eld og dauða. Færðust að logarnir brestandi, brakandi, báldrekar skriðu fram eldmakka skakandi, lögðust að fótum hans, fæturna sleikjandi flakandi tungum, og glóðmökkum reykjandi. Hnykluðust vöðvar
á herðum þreknum, efldum er armi upp hann lyfti, losaði kyrtil frá loðnu brjósti, helrún brenndi þar: inn helga kross. Beit svo á kampinn, og krosslagði armana,
karlmennskuró sló um ennið og hvarmana.
Ljómandi kring um hann logarnir kvikuðu, ljósgeislar fagnandi á honum blikuðu. Dimmt er í skála,
dökkir mekkir hefjast úr ösku og hrundum rústum. Inni við gaflað í ösku stendur Héðinn örendur með opnum sjónum. Heyrst ei hafði hósti né stunur. |