Sonnetta | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sonnetta

Fyrsta ljóðlína:Vorið er liðið, ilmur ungra daga
bls.229
Viðm.ártal:≈ 1900
Tímasetning:1911

Skýringar

Þessi sonnetta var bæði prentuð í Eimreiðinni og Gjallarhorni 1911.
Vorið er liðið, ilmur ungra daga
orðinn að þungum, sterkum sumarhita,
æskan er horfin, engir draumar lita
ókomna tímans gráa sinuhaga.

Við erum fæddir úti á eyðiskaga,
eilífðarsjórinn hefur dimma vita,
fánýtar skeljar fyrir blóð og svita
fengum við keyptar, það er mannsins saga.

Þó hef ég aldrei elskað daginn heitar
– eilífðarnafnið stafar barnsins tunga –
fátæka líf! að þínum knjám ég krýp,

áþekkur skuggablómi, er ljóssins leitar,
– leggurinn veldur naumast eigin þunga –
fórnandi höndum þína geisla eg gríp.