Sigurðarkvæði. | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sigurðarkvæði.

Fyrsta ljóðlína:Þegar lagt er upp að morgni
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Þegar lagt er upp að morgni
er bjart frá brún að sjá
til bláfjallanna í austri
og sól á sléttafelli
og trippin rekast vel
yfir heiðina-há
um huldumannabyggðir
hjá gangnamannahelli.
Þó hnyklist úði grár
um þröm og fremrafjall
þú finnur þér í hjarta
bjarnaryl.
Það kynni að reynast vandratað
um kolugafjall
en kannski verður áð
við skáldagil.
2.
En hófsár gerast trippin
á leið um leggjabrjót
og lítið er um gras
á hungurbakka
á stórasandi og kili
við ströngukvísl og þjót
þar sem straumabrimið
skellur hátt á makka
þar er brotið grýtt og tæpt
- þú herðir hug og geð
og þú herðir grip
um svipu þína og taum
til að berjast við þann straum
sem þú berst þó alltaf með
- til að berjast
við hinn ósigrandi straum.
3.
Frá laugarkvíslarfitjum
er langt í hvannamó
og loftið stundum myrkt
af sandarróti
og kannski fyndist einhverjum
að komið væri nóg
en klárar orðnir þreyttir
að sækja upp í móti.
Og blær af jökulhorni
er bitur eins og sverð
hinn blakki melur
harður eins og steinn.
Og þér er orðið ljóst
að þú ert einn á ferð
og þó þú hrópir
gegnir ekki neinn.
4.
Þá glottir til þín
hin gamalkunna sögn
um goðaland
sem enginn fundið getur
og öræfanna kyrrð
og öræfanna þögn
er allt í einu grimm
sem frostavetur.
Loks ber þig enn að á
þar er hljótt og húmað að
og hinumeginn
engan bakka að sjá
og hér er engin brú
og hér er ekkert vað.
Svo hleypir þú til sunds
í jökulsá.