Guðmundur Hannesson prófessor 70 ára | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Guðmundur Hannesson prófessor 70 ára

Fyrsta ljóðlína:Þína eigin þræddir leið
Heimild:Ströndin.
bls.112
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Þína eigin þræddir leið
í þjóðmálanna slarki.
Hún mun verða gata greið
að göfgu og háu marki.
2.
Yfir slörkin byggðir braut
og brúaðir marga keldu
þar sem ýtar áttu í þraut
og ofan klyfjar felldu.
3.
Steyptir vörðu á vegi þeim
vel fór það úr höndu.
Sóttir út um allan heim
efni í hverja blöndu.
4.
Þó var íslenskt úrvalsgrjót
oft í mótin borið.
Þegar hallar hausti mót
í huganum áttu vorið.