Geysir í Haukadal (Sléttubönd) | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Geysir í Haukadal (Sléttubönd)

Fyrsta ljóðlína:Leysir fjötra, bifast brjóst
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Leysir fjötra, bifast brjóst -
bárur glampa, hrynja.
Geysir nötrar, löður ljóst
lætur skvampa, dynja.
2.
Geysir dæsir, horfir hátt
himinleiðum fagnar.
Þeysir, hvæsir, glettinn, grátt
gaman seiðinn magnar.
3.
Geysir frakkur leitar lags
lífsins straumar kvika.
Reisir makka, flaksast fax
feikna taumar blika.
4.
Reykur svífur hæðir hátt
hópur úðamynda.
Leikur hrífur, magnar mátt
myndar prúða tinda.
5.
Úðaslæður, geislaglóð
gliti skrýðir dýru
Prúða hæða gyðjan góð
gulli prýðir skíru.
6.
Kvaddi gesti yfir ál
Íslands mesti sóminn.
Gladdi, hressti segull sál
seiddi, hvessti róminn.