Föðurland vort hálft er hafið | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Föðurland vort hálft er hafið

Fyrsta ljóðlína:Líknargjafinn þjáðra þjóða
Bein slóð að efni
Viðm.ártal:≈ 0
  • Líknargjafinn þjáðra þjóða
  • þú, sem kyrrir vind og sjó
  • ættjörð vor í ystu höfum
  • undir þinni miskunn bjó.
  • Vertu með oss, vaktu hjá oss
  • veittu styrk og hugarró.
  • Þegar boðinn heljar hækkar
  • Herra, lægðu vind og sjó.
  • Föðurland vort hálft er hafið
  • helgað þúsund feðra dáð.
  • Þangað lífsbjörg þjóðin sótti
  • þar mun verða stríðið háð.
  • Yfir logn og banabylgju
  • bjarmi skín af Drottins náð.
  • Föðurland vort hálft er hafið
  • hetjulífi' og dauða skráð.
  • Þegar brotnar bylgjan þunga
  • brimið heyrist yfir fjöll
  • þegar hendir sorg við sjóinn
  • syrgir, tregar þjóðin öll
  • vertu ljós og leiðarstjarna
  • lægðu storm og boðaföll
  • líknargjafinn þjáðra þjóða
  • þegar lokast sundin öll.
  • Drottinn, þinnar ástar óður
  • endurhljómi' um jörð og höf.
  • Breiddu þína blessun yfir
  • blóma lífs og þögla gröf.
  • Vígi' og skjöldur vertu þeim, sem
  • vinda upp hin hvítu tröf.
  • Drottinn, þinnar ástar óður
  • endurhljómi' um jörð og höf.